Efni:                             Stjórnarfundur Sörla
Fundur nr.:                  3 - 2021
Staður og stund:        Sörlastaðir, þriðjudagur 3. mars 2021
Mættir stjórnarmenn: Atli Már Ingólfsson, Ásta Kara Sveinsdóttir, Kristján Jónsson, María Júlía Rúnarsdóttir. Kristín Þorgeirsdóttir.
Áheyrnarfulltrúi:     Sigríður Kristín Hafþórsdóttir, framkvæmdastjóri Sörla
Fjarverandi:             Stefnir Guðmundsson og Sveinn Heiðar Jóhannesson.
Ritari fundar:           Ásta Kara Sveinsdóttir

 

  1. Sendir  voru reikningar vegna félagsgjalda.
  2. Aðalfundur
    • Stjórn verið upplýst um tvö framboð til stjórnar.
    • Verið er að klára frágang ársreiknings fyrir aðalfund.
    • Stjórn vonar að ekki verði öllu skellt í lás og hægt verði að halda aðalfund. Ef svo verður, verður hægt að athuga hvort væri möguleiki að streyma fundinum.

 

  1. Auglýsing tilboða í hönnun reiðhallar. Staða málsins

Núna er hönnun reiðhallar komin í auglýsingu. Fólk hefur til 30 mars. að bjóða tilboð í lokahönnun.

Rætt um tilboðsgerð og kröfur, umræður um mögulega skilgreiningu á löglegum keppnisvelli innanhúss. Hvort mögulega þurfti að bregðast við því í hönnunarferlinu eða ekki.

 

  1. Happdrætti
    • Núna þurfa stjórnarmeðlimir og framkvæmdastjóri að fara á fullt að leita af vinningum fyrir hið árlega happdrætti Sörla. Framkvæmdastjóri sér um utanumhald vinninga og lætur vinna auglýsingar ofl.

 

  1. Frá framkvæmdarstjóra:
    • Reiðhallargólf – kostnaðaráætlun og framkvæmdatími – leki í lofti

Komin er hugmynd af gólfefni sem setja ætti í höllina. Efnið er unnið af brettavinnslunni í Hveragerði. Óskað verður eftir sambærilegu tilboði hjá Furuflís.

Gólfið í höllinni verður tekið í gegn 28. 29 og 30. mars. Framkvæmdin mun kosta um það bil 2.5 miljónir.

  • Íslandsmót barna og unglinga – framkvæmdanefnd.

Búið er að auglýsa eftir sjálfboðaliðum í framkvæmdanefnd mótsins.

 

 

  • Kynbótasýningar – framkvæmd

Bætt verður efni á brautina í vor, búið er að ræða við verktaka sem mun sjá um það.

Búið er að semja um verð við RML um fæði ofl. fyrir dómar.

  • Mót – styrkir

Ekki gengur nægilega vel að fá styrki fyrir mót hjá félaginu. Stjórn vill hjálpa mótanefnd að sækja um styrki. Rætt um hver talar við hvern.

  • Lýsing á reiðvegum

Stjórn þarf að vinna í því að senda erindi að bæta þurfi lýsingu á svæðinu. Helst þyrfti lýsingu á kafla milli stóra og litla hrings

  • Kerrusvæði

Helst þyrfti að stækka kerrustæðið, þar sem það er of lítið.

Senda þyrfti erindi á bæinn varðandi lokanir í hverfinu. Vegna hraðaaksturs getur verið hættulegt hversu hratt sumir keyra í gegnum hverfið. Vegna öryggis leggur stjórn til tvær lokanir á svæðinu. Kynna á tillögu stjórnar fyrir eigendum húsa við götuna áður en erindið er sent Hafnafjarðarbæ.

  • Zetor

Zetorinn er komin til ára sinna, algjört aðstöðuleysi hjá okkur til að sjá um lágmarksviðhald á vélinni sem er bagalegt.

 

  1. Önnur mál.

 

Fundi slitið, 9 mars 2021

Kl 22:10

Birtingardagsetning: 
föstudaginn, 26. mars 2021 - 12:05
Viðburðardagsetning: 
föstudaginn, 26. mars 2021 - 12:05 to laugardaginn, 27. mars 2021 - 12:05