Í gær, föstudag, fór fram keppni í Fimmgangi F1 og Fjórgangi V1 í meistaraflokki. 
Sörli átti þar keppendur og varð Snorri Dal í 3. til 4. sæti á hestinun Engli frá Ytri-Bægisá 1 í Fimmgangi F1. 
Anna Björk keppti einnig fyrir hönd Sörla í fjórgangi V1 á hestinum Flugari frá Morastöðum og urðu þau  í 14. sæti.
Í dag heldur keppnin áfram og munu allmargir Sörlafèlagar spreyta sig. Við hlökkum til að sjá hvernig gengur.
 
Áfram Sörlafólk!
Áfram Sörli!
Birtingardagsetning: 
laugardaginn, 22. ágúst 2020 - 10:20
Sörli Hestamannafélag, Íþrótt, Lífstíll