Æskulýðsnefndin er búin að skoða veðurspánna og þar sem spáð er hæglætis veðri mun nefndin standa fyrir reiðtúr n.k. miðvikudag 19. feb. kl: 19:00.
Markhópurinn eru vanir krakkar sem geta riðið út sjálf. Kastað verður toppi og farastjórar meta eftir getu hópsins og stærð hversu hratt verður farið.
Lagt verður stundvíslega af stað frá suðurgafli Sörlastaða kl 19.
Þátttakendur skulu vera í gulum endurskinsvestum, þau sem ekki eiga/mæta í slíkum vestum fá úthlutað frá æskulýðsnefndinni.
Skráningu í reiðtúrinn skal senda á aeskulydsnefnd@sorli.is að undanskildum þeim börn sem stunda hesta í félagshesthúsi Sörla, þau skrá sig hjá þeim Auði og Guðbjörgu.
Kveðja, Æskulýðsnefndin