Birtingardagsetning: 
föstudaginn, 7. febrúar 2020 - 14:40

Það er okkur félögunum í  Hestamannafélaginu Sörla mikið kappsmál að fá nýja reiðhöll sem allra fyrst til að geta, fyrst og fremst, sinnt unga fólkinu okkar betur.

Núna í vikunni þá byrjuðum við með fastar æfingar fyrir börn, unglinga og ungmenni einu sinni í viku, æskulýðsnefnd og stjórn félagsins, eru með hugmyndir um að hafa slíkar æfingar þrisvar sinnum í viku og bjóða upp á þær fyrir fleiri aldurshópa eða alveg frá 5 ára aldri. Þessar æfingar auk meiri kennslu fyrir fleiri hópa í Knapamerkjum er eitthvað sem við viljum eindregið geta haft sem valkost fyrir Sörlabörnin, unglingana og ungmennin okkar og reyna að tengja þau við t.d. valfög í grunn- og framhaldsskólum Hafnarfjarðarbæjar. Til viðbótar þessu sjáum við fyrir okkur aukna möguleika í öðrum námskeiðum með ólíkum reiðkennurum fyrir unga fólkið auk þess sem að  okkur langar að koma að vinnu með fötluðum sem lengi hefur verið markmið innan félagsins.

Næstkomandi þriðjudag, þann 11. febrúar kl. 17:15, er kynningarfundur á breytingartillögu v/byggingarreitar reiðhallarinnar og einnig kynning á breytingu frá því sem var á nýjum og breyttum hesthúsalóðum sem margir hafa beðið eftir.

Fundurinn verður haldinn í húsakynnum Hafnarfjarðarbæjar að Norðurhellu 2.

Það er einlæg beiðni okkar að biðja alla félagsmenn Sörla, afa, ömmur, foreldra, ungmenni, unglinga og börn í Sörla að mæta á fundinn til stuðnings þessu stóra verkefni. Við gerum ekki ráð fyrir að hann verði langur. Með því að mæta sýnum við Sörlafólk að það eru ekki aðeins fáir aðilar sem óska eftir nýrri aðstöðu í formi reiðhallar heldur margt fólk og á öllum aldri.  

Mætum öll og sýnum samheldni. Mætum með börnin okkar og gerum með því okkar frábæra félag, Sörla, sýnilegt.

11. febrúar kl. 17:15 að Norðurhellu 2 í Hafnarfirði

Áfram Sörli

 

Mynd er af fyrirhugaðri byggingu - ekki er um endanlegt útlit að ræða

 

Sörli Hestamannafélag, Íþrótt, Lífstíll