Birtingardagsetning: 
miðvikudaginn, 29. janúar 2020 - 13:51

Nú hefst Meistaradeildin í hestaíþróttum á morgun fimmtudaginn 30. janúar með fjórgangi en keppt verður í TM Höllinni í Víðidal.

Hvetjum alla til að skella sér í Fák og horfa á deildina.

Herlegheitin byrja kl 19:00

Einnig verður hægt að mæta á Sörlastaði og horfa á deildina í glænýju stórkostlegu sjónvarpi sem tengt er við fína hljóðkerfið í salnum.

Gæti orðið skemmtileg stemning og fínn undirbúningur fyrir Þorrareið og Þorrablót sem verður hjá okkur á laugardaginn.

Sörli Hestamannafélag, Íþrótt, Lífstíll