Birtingardagsetning:
föstudaginn, 24. janúar 2020 - 11:37
Frá:
Í nóvember síðastliðnum fór LH af stað með verkefni fyrir unga og metnaðarfulla knapa sem kallast Hæfileikamótun LH. Verkefnið verður á ársgrundvelli og er fyrsta skref og undirbúningur fyrir U-21 árs landslið.
Ungir og hæfileikaríkir knapar viðsvegar af landinu á aldrinum 14-17 ára og gátu sótt um að komast í þennan hóp.
Nú í byrjun árs voru 6 hópar með 48 knöpum valdir til að taka þátt í Hæfileikamótun LH 2020 og í þeim hópi er Sörla stúlkan Sara Dís Snorradóttir.
Við óskum henni innilega til hamingju með að komast í hópinn og hlökkum til að fylgjast með henni í framtíðinni.