Birtingardagsetning: 
mánudaginn, 13. janúar 2020 - 10:44

 

Stjórn hestamannafélagsins Sörla auglýsir eftir fimm sjálfboðaliðum í starfshóp til að fara yfir og útfæra leiðara fyrir árangursverðlaun sem veitt eru árlega á árs- og uppskeruhátið félagsins.

Mjög æskilegt er að aðilarnir hafi reynslu af keppni eða mikla þekkingu á hestaíþróttum.

Verkefni starfshópsins er að skoða núverandi reglur og leiðara og vinna tillögur að endurbótum, eftir mati starfshópsins. Meðal verkefna starfshópsins er að ákveða hvaða mót telja til stiga sem og að yfirfara stigatöflu.

Stjórn mun velja úr hópi umsækjenda í starfshópinn, eftir þekkingu og reynslu. Umsóknum skal skilað inn á netfangið sorli@sorli.is fyrir 20.01.2020

Einn fulltrúi úr þessum hópi kemur til með að vera, ásamt fulltrúa úr stjórn og fulltrúa frá mótanefnd, í vinnuhópi, sem yfirfer og ber ábyrgð á útreikningi stiga fyrir innsendan árangur keppenda og gerir tillögur til stjórnar að veitingu verðlauna.

Miðað er við að starfshópurinn ljúki störfum í byrjun febrúar 2020 og kynni tillögur hópsins á stjórnarfundi miðvikudaginn 5.febrúar

Framkvæmdastjóri mun vinna eftir því að reglurnar og leiðarinn séu ávallt birtar í upphafi árs á heimasíðu félagsins, þannig að þær liggi fyrir þegar keppnisárið hefst.

Stjórn og framkvæmdastjóri Sörla

Sörli Hestamannafélag, Íþrótt, Lífstíll