Í dag er síðasti dagur skráningar á opið íþróttamót Sörla og HS Orka.

EKKI verður hægt að taka við skráningum eftir það. EFTIR AÐ SKRÁNINGU LÝKUR KEMUR Í LJÓS HVERNIG DAGSKRÁ VERÐUR HAGAÐ OG MÖGULEGA HEFJUM VIÐ MÓTIÐ Á FÖSTUDEGINUM 17. MAÍ.

Allar upplýisngar má líka finna á facebokk viðburðinum: Opið íþróttamót Sörla og HS Orku

Einungis þeir sem hafa greitt félagsgjöldin sín hafa keppnisrétt á mótinu.

 

Mótanefnd vill vekja athygli á því að í ár verður í boði:

- keppni í T7 í öllum yngri flokkum og 2. flokki

- keppni í T3, T4, V2, F2 í Meistaraflokki

- keppni í F2 í unglinga og ungmennaflokki

 

Þessi nýbreytni er gerð til að mæta óskum félagsmanna um fjölbreytni í flokkaframboði og verður vonandi hvatning til þátttöku. Knapar sem hafa þegar skráð sig en vilja færa sig í þessar greinar geta haft samband á motanefnd@sorli.is

 

Mótanefnd Sörla áskilur sér rétt til að fella niður eða sameina flokka/greinar ef ekki er næg þáttaka. Lög og reglur um eftirfarandi flokka má finna hér:

https://www.lhhestar.is/static/files/Log_og_reglur/2018/lh_logogreglur_2...

 

Yfirlit yfir flokka og keppnisgreinar:

Barnaflokkur:  Fjórgangur V2 – Tölt T3 – Tölt T7

Unglingaflokkur:  Fjórgangur V2 – Fimmgangur F2 – Tölt T3 – Tölt T7 - Tölt T4

Ungmennaflokk:  Fjórgangur V2 – Fimmgangur F2 – Tölt T3 – Tölt T7 - Tölt

T4 - Gæðingaskeið PP1

2. flokkur:  Fjórgangur V2 – Fjórgangur V5 – Fimmgangur F2 – Tölt T3 –Tölt T4 – Tölt T7 – Gæðingaskeið PP1 1. flokkur: Fjórgangur V2 – Fimmgangur F2 – Tölt T3 – Tölt T4 - Gæðingaskeið PP1 Opinn flokkur / Meistaraflokkur: Fjórgangur V1 og V2 – Fimmgangur F1 og

F2 – Tölt T1 og T3 – Tölt T2 og T4 – Gæðingaskeið PP1 – 100 m skeið P2

 

Birtingardagsetning: 
þriðjudaginn, 14. maí 2019 - 12:45
Frá: 
Sörli Hestamannafélag, Íþrótt, Lífstíll