Við byrjuðum á skírdag að selja miða í happdrættinu okkar, miðasalan fór mjög vel af stað, en þetta er fjáröflun og við ætlum að selja alla miðana ;-)
Enn er hægt að kaupa miða og verður hlægt fram á úrdráttardag.
Hægt er að senda tölvupóst á sorli@sorli.is til að kaupa miða, senda fjölda miða sem við komandi vill kaupa, nafn, kennitölu og gsm númer og þá er hægt að ganga frá kaupum.
Einnig er hægt að koma á Sörlastaði og kaupa miða og þeir verða einnig seldir á öllum viðburðum á vegum félagsins til 18.maí.
Um 120 frábærir vinningar, einungis voru gefnir út 2000 miðar og aðeins dregið úr seldum miðum.
Á skírdag hefst sala í stórhappdrætti Sörla. Yfir 100 frábærir vinningar. Einungis verða gefnir út 2000 miðar og aðeins dregið úr seldum miðum.
Dregið verður þann 18. maí.
Margskonar vörur fyrir hestamenn og aðra. Hótelgistingar, matarveislur og allskonar þjónusta og skemmtun.
Folatollarnir eru hvorki fleiri né færri en 30 talsins, hvorum öðrum flottari. Hátt dæmdir fyrstu verðlauna hestar og stórættaðir ungfolar.
Félagið safnar nú í byggingarsjóð fyrir nýrri reiðhöll og margskonar framkvæmdir eru í gangi hjá félaginu.
Við skorum á alla félagsmenn að kaupa sér miða, í fleirtölu,, og styrkja með því félagið sitt og reyna á heppnina í leiðinni.