Viðburðardagsetning: 
föstudaginn, 19. apríl 2019 - 12:04 to laugardaginn, 20. apríl 2019 - 12:04
Vettvangur: 

Þá er komið að þessu bráðskemmtilega móti sem haldið verður í Sörla laugardaginn 27. apríl. Að þessu sinni verður Nýhestamótið opið og vonumst við til að félagsmenn úr öðrum félögum fagni þessari nýbreytni og fjölmenni með nýhestana sína.

Keppnisfyrirkomulagi á Nýhestamóti hefur verið breytt lítilsháttar og verður með eftirfarandi hætti:
* Hestur má ekki hafa unnið til verðlauna árið 2018 eða fyrr hvorki í Sörla né öðrum félögum.
* Hestur má hafa unnið til fyrstu verðlauna sinna á þessu ári.
* Keppt er í tölti á beinni braut eftir rásröð.
* Riðnar eru fjórar ferðir, eða tvisvar fram og tilbaka, þar sem sýnt er hægt tölt og fegurðartölt.
* Hæstu einkunnir úr báðum ferðum gilda.

Ef keppendur eru 20 eða færri skráðir í flokk skipar dómari 5 efstu hesta í sæti. Séu keppendur 21 eða fleiri skráðir í flokk velur dómari 10 efstu hesta sem ríða úrslit.
Að úrslitum loknum velur dómari 5 efstu hesta í sæti.

Þar sem þetta eru nýir hestar að koma fram á sjónarsviðið á keppnisbrautinni bjóðum við knöpum að senda okkur (sendist á: motanefnd@sorli.is) nánari upplýsingar um hestinn eins og t.d. hver er eigandi, ræktandi, ættir auk annarra skemmtilegra upplýsinga sem getur verið skemmtilegt að þulur segi frá.

Í boði verða eftirfarandi flokkar (heiti í sportfeng innan sviga):
- 21 árs og yngri (B flokkur ungmenna - Gæðingaflokkur 1)
- Minna vanir karlar og konur (B flokkur - Gæðingaflokkur 2)
- Meira vanir karlar og konur (B flokkur - Gæðingaflokkur 1)

Skráningargjald er kr. 3.500 í fullorðins flokkum og 3.000 í 21 árs og yngri. Skráning er hafin á sportfengur.com og verður opin til 24 apríl

Birtingardagsetning: 
föstudaginn, 19. apríl 2019 - 12:04
Frá: 
Sörli Hestamannafélag, Íþrótt, Lífstíll