Samstarfið gengur út á það að af hverri keyptri ferð hjá Gaman Ferðum munu 3.000 krónur renna til Hestamannafélagsins Sörla.
Við hefjum þetta samstarf með því að hvetja félagsmenn Hestamannafélagsins Sörla til að fjölmenna á HM í Berlín með Gaman Ferðum og styrkja í leiðinni okkar frábæra félag og félagsandann. Að auki geta Sörlafélagar haldið áfram að styrkja Sörla með því að kaupa hverskyns ferðir hjá Gaman Ferðum s.s. í sólina, á tónleika, á fótboltaleiki, í golfferðir svo eitthvað sé nefnt.
Athugið að við öll kaup á ferðum hjá Gaman Ferðum þurfa þeir sem vilja styrkja Sörla að slá inn kóðann ,,sorli“ í reit sem heitir [Afsláttarmiðar] til að Sörli fái styrkinn.
Höfum Gaman Saman með Gaman Ferðum.