Kæru Sörlafélagar
Árlegur þorrareiðtúr verður farinn laugardaginn 26.janúar. Lagt verður af stað frá Sörlastöðum kl 13:00 og riðinn hóflega langur hringur. Í áningu verður síðan boðið upp á rammíslenskar þorraveitingar að hætti hússins. Vonum að sem flestir sjái sér fært að mæta á þennan skemmtilega viðburð og svo er þetta auðvitað upplagt til að koma sér í gírinn fyrir Þorrablót Sörla.
Allir velkomnir
Frá:
Ferðanefnd
Vettvangur: