Aðalfundur hestamannafélagsins Sörla verður haldinn fimmtudaginn 25. október kl. 20:00 að Sörlastöðum.

Dagskrá fundarins er eftirfarandi:

  1. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
  2. Fjöldi félagsmanna kunngerður og upplýsingar gefnar um fjölgun þeirra eða fækkun.
  3. Formaður leggur fram og skýrir skýrslu stjórnar um starfsemi félagsins á liðnu ári.
  4. Gjaldkeri leggur fram og skýrir reikninga félagsins.
  5. Umræður um liði 3 og 4 og atkvæðagreiðsla um reikningana.
  6. Formenn nefnda leggja fram og skýra skýrslur um starf viðkomandi nefnda á liðnu ári.
  7. Kosning formanns.
  8. Kosning fjögurra (af sex) manna í stjórn (þrír til tveggja ára og einn til eins árs)
  9. Kosning tveggja endurskoðenda og eins til vara.
  10. Kosning í nefndir, deildir og ráð og skal kjósa formenn sérstaklega. 
    Í lávarðadeild er ekki kosið, sbr. 18. gr.
  11. Tillaga lögð fram til samþykktar um árgjald næsta árs.
  12. Lagabreytingar.
  13. Önnur mál sem félagið varðar.

Að venju verða íþróttamaður og íþróttakona Sörla heiðruð, ásamt öðrum viðurkenningum.

Vonumst til að sjá sem flesta félagsmenn.

Stjórn Sörla

Birtingardagsetning: 
þriðjudaginn, 9. október 2018 - 13:09
Sörli Hestamannafélag, Íþrótt, Lífstíll