Fræðslufundur á vegum Dýralæknastofu Suðurnesja.
Dýralæknastofa Suðurnesja stendur fyrir fræðslufundi í félagsheimili Mána föstudaginn 21. nóvember kl 18.00. Sigríður Björnsdóttir dýralæknir hrossasjúkdóma leiðir fundargesti í allan sannleik um ormasýkingar í hrossum. Einnig mun hún ræða um nýju reglugerðina um velferð hrossa. Húsið opnar kl 17.45 og hefst fundurinn kl 18.00. Enginn aðgangseyrir og heitt á könnunni.
Viðburðardagsetning:
föstudaginn, 21. nóvember 2014 - 18:00
Frá:
Vettvangur:
Birtingardagsetning:
föstudaginn, 21. nóvember 2014 - 10:50