Gæðingaveisla Sörla og Íshesta verður haldin dagana 22. til 24. ágúst. Dagskráin veður seinnipart dagana og fram á kvöld.
Boðið verður upp á eftirfarandi flokka:
- A flokkur opinn flokkur
- A flokkur áhugamanna
- B flokkur opinn flokkur
- B flokkur áhugamanna
- Ungmennaflokkur
- Unglingaflokkur
- Barnaflokkur
- T 3 opinn flokkur 1. fl.
- T3 opinn flokkur 2. fl.
- T3 21 árs og yngri (skráning á sportfeng: T3 – annað)
Þeir sem ætla að keppa í A eða B flokki áhugamanna skrá sig á sportfeng en verða að senda tölvupóst á sorli@sorli.is þar sem kemur fram að þeir vilji keppa áhugamannaflokki. Þeir sem ekki láta vita í tölvupósti verða sjálfkrafa skráðir í opinn flokk.
Að öðru leyti fer skráning fram á http://www.sportfengur.com/ og er skráning opin til og með 20. ágúst. Skráning er ekki gild nema að staðfesting um greiðslu hafi borist. Mótanefnd áskilur sér rétt á að fella niður eða sameina flokka ef skráning er dræm.
Mótanefnd Sörla