Birtingardagsetning:
þriðjudaginn, 28. október 2014 - 22:02
Frá:
Aðalfundur Sörla fer fram næstkomandi fimmtudag 30. október kl 20:00 að Sörlastöðum. Við hvetjum félagsmenn til að fjölmenna.
Dagskrá aðalfundar:
1. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
2. Fjöldi félagsmanna kunngerður og upplýsingar gefnar um fjölgun þeirra eða fækkun.
3. Formaður leggur fram og skýrir skýrslu stjórnar um starfsemi félagsins á liðnu ári.
4. Gjaldkeri leggur fram og skýrir reikninga félagsins.
5. Umræður um liði 3 og 4 og atkvæðagreiðsla um reikningana.
6. Formenn nefnda leggi fram og skýri skýrslur um starf viðkomandi nefnda á liðnu ári.
7. Kosning formanns.
8. Kosning sex manna í stjórn.
9. Kosning tveggja endurskoðenda og eins til vara.
10. Kosning í nefndir, deildir og ráð og skal kjósa formenn sérstaklega. Í lávarðadeild er ekki kosið, sbr. 18. gr.
11. Tillaga lögð fram til samþykktar um árgjald næsta árs.
12. Lagabreytingar.
13. Önnur mál sem félagið varðar.