Hin árlega Karlpungaferð hefst á Sörlastöðum miðvikudaginn 24, maí kl. 19,00. Farið verður í stuttan reiðtúr með einni áningu. Mæta með einn hest.( þetta er ekki sleppitúr! ). Eftir að menn hafa gengið frá sínum hesti verður hátíðarmatseðill, kótelettur í raspi með tilheyrandi meðlæti. Með máltíðinni fylgja tveir öllarar. Sráning fer fram í síma 897 2919, 822 5990, 862 5363 til hádegis þriðjudaginn 23. maí. Miðar verða síðan afhentir sama dag á Srörlatöðum til kl. 17:00. Áríðandi er að allir sem ætla að taka þátt mæti á tilskyldum tíma að Sörlastöðum.
Ferðin er eingöngu fyrir karlkyns Sörlafélaga 20 ára og eldri.
Verð kr. 4.500,-
Nefndin