Æskulýðsnefnd Landssambands hestamannafélaga boðar til fundar í Sörla í Hafnarfirði fimmtudaginn 18. maí kl. 20:00.
Þetta er fjórði fundurinn í fundarröð nefndarinnar en fyrsti fundurinn var haldinn á Akureyri, annar fundurinn var í Búðardal og þriðji á Selfossi. Tókust þeir mjög vel og miklar og góðar umræður um málefnið.
Tilgangur fundanna er að efla tengsl nefndarinnar við það fólk sem vinnur að og hefur áhuga á æskulýðsmálum í hestamannafélögunum, að kynna starfsemi nefndarinnar og ræða almennt um æskulýðsmál og það sem brennur á fólki.
Eins og fram kom á Landsþinginu í Stykkishólmi í haust mun áhersla sambandsins vera á nýliðun og æskulýðsmál og er þessi fundaferð liður í því. Það er von nefndarinnar að sem flestir sjái sér fært að mæta á fundina sem eru opnir öllum áhugamönnum um æskulýðsstarf.
Á fundinn í Sörla er stefnt fulltrúum félaganna á höfuðborgarsvæðinu og nágrenni, þó vitanlega séu allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir.
Þessi félög eru:
Sörli
Hörður
Fákur
Sprettur
Sóti
Máni
Brimfaxi
Adam
Æskulýðsnefnd LH hvetur áhugasama til þess að mæta og sækja góðan fund um málefni æskulýðsins í hestamennskunni. Það er stöðugt þörf á því að halda vel á spöðunum í þessum málaflokki.
Kær kveðja
Æskulýðsnefnd LH