Eftirfarandi lagabreyting verður lögð fyrir á 70. aðalfundi hestamannafélagsins Sörla sem fram fer á Sörlastöðum 30. Október 2014
Byrjun 6.gr. laganna breytist.
Var eftirfarandi:
6. gr.
Aðalfund skal halda í október ár hvert. Til hans skal boðað með minnst tveggja vikna fyrirvara með auglýsingu í fréttabréfi félagsins, tilkynningu á heimasíðu félagsins og auglýsingum á félagssvæðinu. Í fundarboði skal vísað til laga félagsins um dagskrá.
En verður:
6.gr
Aðalfund skal halda í október ár hvert. Til hans skal boðað með minnst tveggja vikna fyrirvara með tilkynningu á heimasíðu félagsins. Einnig skal birta auglýsingu í bæjarblaði. Í fundarboði skal vísað til laga félagsins um dagskrá.