Viðburðardagsetning: 
fimmtudaginn, 6. apríl 2017 - 18:00 to laugardaginn, 8. apríl 2017 - 18:00

Landsbankamót III verður haldið fimmtudaginn 6 apríl til 8. apríl Opið er fyrir skráningu á sportfengur.com og er hún opin út 4. apríl.  Rétt er að minna á að einungis þeir sem hafa greitt félagsgjöldin fyrir árið 2017 hafa rétt á að keppa á þessu móti.

Hér eru leiðbeiningar hvernig flokkar eru skilgreindir í sportfeng.

  • Opinn flokkur.  Mikið keppnisvant fólk, bæði atvinnumenn og áhugamenn. Kynjablandaður flokkur.  Fólk sem mjög virkt í keppni og hefur áralanga reynslu í keppni.
  • Opinn flokkur - 1 flokkur.   Keppnisvanir knapar, bæði konur og karlar skrá sig hér en flokkurinn er kynjaskiptur í keppni. Fólk sem hefur verið að keppa sem áhugamenn og eru komnir með reynslu í einhverjum keppnisgreinum.
  • Opinn flokkur - 2 flokkur.  Minna vanir knapar, bæði konur og karlar skrá sig hér en flokkur er kynjaskiptur í keppni.  Fólk sem hefur lítið keppt eða er að byrja aftur að keppa eftir langt hlé.
  • Meira vanir.  Flokkur 55+ heldri menn og konur. Kynjablandaður flokkur fyrir knapa sem eru 55 á árinu eða eldri.  Þeir sem kepptu í þessum flokk í fyrra (þá 50+) mega halda áfram að keppa í þessum flokk.
  • Minna vanir  Byrjendaflokkur.  Kynjablandaður flokkur fyrir knapa sem hafa aldrei keppt en langar að spreyta sig.
  • Pollaflokkur.  Knapar 9 ára eða yngri á árinu. 
  • Barnaflokkur. Knapar 10 - 13 ára á árinu
  • Unglingaflokkur. Knapar 14 - 17 ára á árinu
  • Ungmennaflokkur. Knapar frá 18 - 21 ára á árinu

Dagskrá mótsins verður auglýst síðar.

Kær kveðja mótanefndin


 

Birtingardagsetning: 
föstudaginn, 31. mars 2017 - 8:23