Stjórnarfundur Sörla Fundur nr.: 6 – 2017
Mættir: Thelma Víglundsdóttir, Valka Jónsdóttir, Þórunn Ansnes, Eggert Hjartarson,, Atli Már Ingólfsson,, Hanna Rún Ingibergsdóttir. Fjarverandi: Einar Örn Þorkelsson Ritari fundar: Valka Jónsdóttir
Fundartími stjórnar. Ákveðið að halda stjórnarfundi aðra hverja viku á mánudögum kl. 19.30 næst 30. janúar.
Rekstrarsamningur við Hafnarfjarðarbæ. Stjórnarmeðlimir hittu bæjarstjóra Hafnarfjarðar til að ræða skerðingar í rekstrarsamning Sörla. Framhaldsfundur með bæjarstjóra verður á morgun 19. janúar 2017.
Ásvallabraut. Framkvæmdir hefjast í vor og verður lagður fyrir ofan Hlíðarþúfur. Framkvæmdastjóri Sörla heyrir í formanni húsfélags Hlíðarþúfna um að fá Hafnarfjarðarbæ til að halda kynningu um þetta verkefni fyrir hesthúseigendur.
Deiliskipulag og eignaskiptasamningur og nýbyggingar á svæði Sörla. Ákveðið að stofna nefnd til að halda áfram með þetta mál.
Krafa er um að klárað verði að bæta eldvarnir í félagsaðstöðu Sörla fyrir 1. júlí 2017. Stærsta málið er eldvarnargler milli reiðhallar og félagsaðstöðu. Hafnarfjarðarbær þarf að koma að þessu máli.
Drasl í kringum reiðhöll Sörla og á kerrusvæði. Ákveðið að fara í tiltekt í á þessu svæði fljótlega.
Kynbótasýningar. Athuga þarf sýningaáætlun fyrir 2017.
Hugmynd kom fram að bjóða flóttamönnum sem bærinn þjónustar, að kynnast íslenska hestinum. Fræðsla, reiðtúr í höllinni fyrir þá sem vilja og jafnvel kjötsúpa í lok heimsóknarinnar.
Önnur mál:
- Rætt um mögulegar umbætur og úrbætur á keppnisvelli, reiðhöll og svæði Sörla. Ákveðið að lista upp áherslur fyrir 2017 og forgangsraða.
- Útleiga á reiðhöllinni. Umræða um leiguverð og tíma.
- Innheimta félagsgjalda. Verða send í heimabanka. Þeir sem óska sérstaklega eftir gíróseðli geta haft samband við framkvæmdastjóra.
- Stjórn Sörla hefur fengið kvartanir yfir því hvernig félagsmenn ríða í reiðhöll. Ekki er farið eftir reglum og reiðleiðum eða verið að ríða ótömdum hestum og/eða hestum sem eru að hrekkja.
- Ákveðið að áminna félagsmenn og setja upp reglur í reiðhöll.
- Ákveðið að kaupa litla myndavél til að hafa aðgengilega fyrir Sörla.
- Almennt er fólk að aka of hratt inn á Sörlasvæðið. Þar sem þetta eru mögulega vistgötur þá er 15km hámarkshraði.
Fundi slitið kl. 22