Gunnar  Hallgrímsson  bauð fólk velkomið ,fór yfir reikninga og útskýrði þá.

Góðar heimtur hafa verið á félagsgjöldum, af 113 hafa  um 90  greitt nú þegar.

Samþykkt var á fundinum að hækka húsgjöldin í 9000kr.

Hússjóður stendur traustum fótum í dag.

Jón Hannesson hætti  sem stjórnarmaður. Við söknum hans  og þökkum við honum fyrir frábært starf í gegn um tíðina.

Í stjórn var samþykktur af fundinum Guðni Kjartansson, sem við bjóðum velkominn.

Á fundinum var ákveðið að halda næsta aðalfund fyrir apríllok 2017

Það voru valdir 5 tengiliðir við framkvæmdastjóra um losun  taðs á svæðinu.

100=Freyja Aðalssteinsdóttir

200=Sigurður Þorleifsson

300=Gunnar Hallgrímsson

400=Jóhann Þórðarson

500=Jóhann Sigurðsson

Þegar kom að liðnum önnur mál tóku margir til máls um hin ýmsu málefni.

Fólk hafði mikinn áhuga á veginum sem á að koma ofan við hverfið, en framkvæmdir eru fyrirhugaðar með vorinu. Fundurinn var einhuga um að félagsmenn þyrftu að gæta hagsmuna sinna vel í kring um þessar framkvæmdir og sýna  samstöðu í orði og verki.                     

Önnur mál voru mikið rædd, mál eins og rafmagnskassar,lýsingar í gerðum, losun úr taðþróm og viðhald þeirra, holur í kring um húsin okkar, reglur um gerðin okkar og viðhald þeirra, stífluð niðurföll  ofl.

Þessi mál eru í vinnslu og farvegi            

Einnig var rætt um beitarhólf og reglur um þau.

Stjórnin er mjög ánægð með þennan fund, hann var fjölmennur, fólk opið, áhugasamt og jákvætt.

Fólk er hvatt til að koma ábendingum um framfarir til stjórnar.

Fundarritari Jón Björn Hjálmarsson

Birtingardagsetning: 
mánudaginn, 9. janúar 2017 - 13:59
Viðburðardagsetning: 
mánudaginn, 9. janúar 2017 - 13:59 to þriðjudaginn, 10. janúar 2017 - 13:59