Birtingardagsetning:
sunnudaginn, 14. september 2014 - 10:28
Frá:
Bókleg knapamerkjakennsla verður í október ef næg þátttaka fæst á hverju stigi fyrir sig.
Knapamerki 1 2 verður kennt á mánudögum og miðvikudögum þrír bóklegir tímar og skriflegt próf
Knapamerki 3 kennt á mánudögum og miðvikudögum 4 bóklegir tímar og skriflegt próf
Knapamerki 45 á þriðjudögum og fimmtudögum 5 bóklegir tímar og skriflegt próf.
Þeir sem hafa áhuga endilega senda mér línu fyrir 5.okt. á ss@sorli.is taka þarf fram í hvaða knapamerki viðkomandi ætlar. Þetta er könnun EKKI skráning
Börn 613 ára
Boðið verður upp á þá nýjung hjá hestamannafélaginu Sörla að börn frá 6 til 13 ára geta nú stundað hestamennsku 1x í viku, á hausmánuðum. Allur búnaður er innifalinn, þ.m.t. aðgangur að hesti og nauðsynlegum búnaði. Kennt verður á fimmtudögum. Takmarkaður fjöldi þátttakenda. Kennarar eru Sigrún Sigurðardóttir, einn reynslumesti reiðkennari landsins, og Þórdís Anna Gylfadóttir, reiðkennari frá Háskólanum á Hólum. Lögð verður áhersla á bóklega kennslu, ásetuæfingar, ýmsa hestaleiki, sýnikennslur o.fl. en ekki almenna reiðkennslu. Skráning fer fram áwww.ibh.felog.is fyrir 1.okt. nk.
Verð kr.18.000. ALLIR VELKOMNIR! Nánari upplýsingar gefa Sigrún s.896 1818 og Þórdís s.868 7432
Þjálfað með Þorra
Þorvaldur Árni verður með 8 tíma námskeið í Sörla í haust. Ef næg þátttaka fæst. Kennt verður tvisvar í viku og hægt að fá einkatíma eða vera tveir og tveir saman. Námskeiðið er byggt upp á þjálfunaraðferðum sem hann notar sjálfur í undirbúningi fyrir næsta ár.