Viðburðardagsetning: 
föstudaginn, 3. júní 2016 - 9:52

Gæðingamót og úrtaka fyrir Landsmót fer fram á félagssvæði Sörla á Sörlastöðum dagana 3. - 4. júní nk. 

Boðið verður upp á eftirfarandi keppnisgreinar:

  • A flokkur gæðinga
  • A flokkur gæðinga áhugamenn
  • B flokkur gæðinga 
  • B flokkur gæðinga áhugamenn
  • Tölt T1 – Opinn flokkur
  • Ungmennaflokkur
  • Unglingaflokkur 
  • Barnaflokkur
  • Unghross (fædd 2011)
  • Skeið 100 m.
  • Pollar teymdir
  • Pollagæðingakeppni

Pollum er ekki sætaraðað en allir fá þátttökuverðlaun. Pollum er ekki heimilt að mæta á stóðhestum.

Reglur vegna úrtöku:
Á þessu móti fer fram úrtaka Sörla fyrir Landsmót 2016 því verða allir keppnishestar að vera í eigu Sörlafélaga. Eigandinn verður að vera skuldlaus við félagið.

Skráning:
Skráning fer fram á sportfengur.com.
Skráningargjald í gæðingakeppnina er kr. 4.500 en 3.500 fyrir börn unglinga og ungmenni og fyrir pollagreinar 1.000 kr. Skráningargjald fyrir 100 m. skeið er kr. 2.000. Athugið að stofnuð hafa verið tvö mót þannig að þeir sem ætla að skrá sig í áhugamannaflokkinn velja mótið: Gæðingamót áhugamenn A og B flokkur.
Skráning fer ekki fram fyrr en skráningargjald hefur verið greitt!  
Skráning hefst í dag fimmtudag 26.5 og lýkur á miðnætti mánudag 30.5.

Sportfengur bíður ekki upp á flokkinn unghross né polla.
Því þarf að skrá eftirfarandi:

Skráning í unghrossakeppni: Annað / Opinn flokkur

Skráning í pollaflokk: Annað / Annað

Mótanefnd Sörla áskilur sér rétt til þess að fella niður keppnisflokka ef þátttaka telst ekki næg. 
Dagskrá verður birt fljótlega eftir að vitað er um fjölda þátttakenda.

með kveðju, Mótanefnd Sörla

Birtingardagsetning: 
fimmtudaginn, 26. maí 2016 - 9:52
Sörli Hestamannafélag, Íþrótt, Lífstíll