Birtingardagsetning:
mánudaginn, 4. apríl 2016 - 11:59
Nú er komið að því að barna- og unglingadeildir hestamannafélaganna á höfuðborgarsvæðinu standi saman að hinni árlegu stórsýningu Æskan og hesturinn.
Þarna gefst fjölskyldum landsins tækifæri til að eiga saman góða stund og horfa á ókeypis skemmtun.
Tvær sýningar í boði kl 13 og 16 í TM höllinni í Víðidal
Að venju eru það hestamannafélögin á höfuðborgarsvæðinu sem standa að sýningunni Fákur í Reykjavík, Sprettur í Garðabæ og Kópavogi, Hörður í Mosfellsbæ, Sóti á Álftanesi og Sörli í Hafnarfirði.