Hestamannafélagið Sörli var stofnað 7. febrúar 1944. Athafnasvæði félagsins er við Kaldárselsveg, frá Hlíðarþúfum og upp að Sléttuhlíð. Félagsaðstaða og reiðhöll Sörla er við Sörlaskeið 13 A. Skrifstofan er opin frá 10-12 mánudaga til fimmtudaga. Sörli er fjórða stærsta íþróttafélag Hafnarfjarðar og á sinn fulltrúa í Íþróttabandalagi Hafnarfjarðar. Kjörorð félagsins eru íþrótt og lífstíll, ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi innan félagsins. Núverandi formaður félagsins er Páll Ólafsson.  Allar nánari upplýsingar um félagið, aðstöðuna og fleira, má finna á sorli.is

mánudaginn, 21. apríl 2014 - 23:32