Velheppnuð folaldasýning var haldin á Sörlastöðum í gær. Alls mættu 39 folöld til leiks. Dómarar voru þeir Magnús Benidiktsson framkvæmdastjóri Spretts og Þorvaldur Kristjánsson hrossaræktarráðunautur. Kynnir var Páll Ólafsson formaður Sörla. Folatollar voru boðnir upp og góð stemming var meðal áhorfenda.
Úrslit folaldasýningarinnar eru eftirfarandi:
Merfolöld:
- Hera frá Ragnheiðarstöðum. Ræktandi og eigandi, Helgi Jón Harðarson
- Kleópatra frá Ragnheiðarstöðum. Ræktandendur og eigendur, Helgi Jón Harðarson og Pálmar.
- Víðátta frá Mossfellsbæ. Ræktandi og eigandi, Gunnar Kristinn Valsson
- Örk frá Lindarbæ. Ræktandi og eigandi, Finnbogi Aðalsteinsson
- Örk frá skógarási. Ræktandi og eigandi, Einar Valgeirsson.
Hestfolöld:
- Kjósverji frá Bjarkarhöfða. Ræktandi og eigandi, Vilhjálmur Karl Haraldsson
- Stormur frá Stíghúsi. Ræktandi og eigandi, Guðbrandur Stígur Ágústsson
- Stormur frá Hafnarfirði. Ræktandi og eigandi, Snorri Rafn Snorrason
- Grímur frá Ragnheiðarstöðum Ræktendur og eigendur, Helgi Jón Harðarson og Stefán.
- Sprettur frá Breiðholti. Ræktandi Gunnar Yngvason, eigendur, Gunnar Gunnarsson og Magnús Geir Gunnarsson
Það folald sem kosið var besta folaldið af áhorfendum var Grímur frá Ragnheiðarstöðum.
Það folald sem dómarar völdu besta folald sýningarinnar var Hera frá Ragnheiðarstöðum.
Bestu þakkir fá þeir fjölmörgu sem gáfu folatolla og aðrir sem styrktu þennan viðburð.