Þorrablótið byrjar klukkan 20:00 – húsið opnar klukkan 19:00

Veislustjóri er hin óviðjafnanlega Ólafía Hrönn.

Bögglauppboðið verður á sínum stað og mun DJ Jón Gestur spila til 02:00

Tekið verður við miðapöntunum frá og með mánudeginum 23. janúar og hægt verður að panta miða hjá Þórunni í síma 8972919.

Miðaverð er 6500 krónur.

Miðasölu lýkur klukkan 17:00 fimmtudaginn 26. janúar.
Miða skal sækja og borga að Sörlastöðum miðvikudaginn 25. janúar milli 18:00 og 20:00 og fimmtudaginn 26. janúar milli 19:00 og 21:00.
 

Ógreiddir og ósóttir miðar verða seldir á föstudeginum.

20 ára aldurstakmark

Viðburðardagsetning: 
laugardaginn, 28. janúar 2017 - 20:00
Sörli Hestamannafélag, Íþrótt, Lífstíll