Kvennareið og móttaka Sprettskvenna 2019

Föstudagskvöldið 10. maí taka Sprettskonur á móti hestakonum frá Fáki, Fjárborg, Herði, Sörla og Sóta. Sprettskonurnar hittast kl. 18.00 fyrir utan Samskipahöllina þar sem boðið er upp á Bailey‘s áður en lagt er af stað kl. 18.15. Sprettskonur skiptast í tvo hópa sem ríða á móti gestunum. Annar hópurinn ríður um Heiðmörk í átt að Hafnarfirði en hinn austan við Elliðavatn í átt að Fáki. Veislumatur verður tilbúinn í Samskipahöllinni um kl. 19. Miðasala verður á netinu og kostar miðinn kr. 3.500,-. Greitt er inn á bankareikning 537-26-170200, kt. 531217-0200 skrifa þarf nafn eða nöfn þeirra sem kaupa miðana og senda í pósti á netfangið: sprettskonur@gmail.com. Nokkur gerði við Hamraenda hafa verið tekin frá fyrir gestahesta. Þau eru merkt með grænum borða. Hlökkum til að sjá ykkur!

 

Í stuttu máli:

Dagsetning 10. maí

Hittast við Samskipahöll kl.18.00

Leggja af stað kl. 18.15

Matur um kl. 19

Miðaverð kr. 3.500

Banki: 537-26-170200

Kt. 531217-0200

Netfang: sprettskonur@gmail.com

Viðburðardagsetning: 
mánudaginn, 6. maí 2019 - 9:55
Frá: 
Framkvæmdastjóra
Vettvangur: 
Sörlastaðir - Sprettur
Sörli Hestamannafélag, Íþrótt, Lífstíll