Hin árlega Karlpungaferð hefst á Sörlastöðum föstudaginn 27,  maí kl. 19,00. Farið verður í stuttan reiðtúr með einni áningu. Mæta með einn hest.( þetta er ekki sleppitúr! ). Eftir að menn hafa gengið frá sínum hesti verður hátíðarmatseðill, kótelettur í raspi með tilheyrandi meðlæti. Með máltíðinni fylgja tveir öllarar. Áríðandi er að allir sem ætla að taka þátt mæti á tilskyldum tíma að Sörlastöðum.

Ferðin er eingöngu fyrir karlkyns Sörlafélaga 20 ára og eldri.

Verð kr. 3500,-

Nefndin

 

Viðburðardagsetning: 
föstudaginn, 27. maí 2016 - 19:00
Sörli Hestamannafélag, Íþrótt, Lífstíll