Viðburðardagsetning: 
miðvikudaginn, 26. ágúst 2020 - 14:57 to laugardaginn, 29. ágúst 2020 - 14:57

 

 

Verður haldin dagana 26. - 29. ágúst á Hraunhamarsvellinum.
Skráninga er hafin á https://skraning.sportfengur.com/Skraningkort.aspx?mode=add og stendur til 22. ágúst nk.

Keppt verður í A og B-flokki Opinn flokkur, A og B-flokki áhugamanna, A og B-flokk ungmenna, B-flokk unglingaflokki og barnaflokki.
Að auki verður keppt í 100m skeiði.

Við ætlum einnig að bjóða upp á Gæðingatölt. Dæmt er hægt tölt og fegurðartölt ásamt því að gefnar eru einkunnir fyrir vilja og fegurð í reið. Til að ská sig í þessa grein þá skal skrá í T1 í sportfeng.com
Gæðingatölt Meistarar (T1 opin flokkur)
Gæðingatölt Áhugamenn (T1 2 flokkur)
Gæðingatölt 21 árs og yngri (T1 ungmennaflokkur)

Skráningargjald:
Börn, unglingar og ungmenni: 3500 kr
Opinn flokkur: 4500 kr
Áhugamannaflokkur: 4500 kr
Skeið: 4500 kr

-ATH – Sé greitt með millifærslu þarf kvittun að berast á motanefnd@sorli.is til að skráning sé tekin gild.

Allar fyrirspurnir og afskráningar skulu berast á motanefnd@sorli.is

Sé skráð eftir að skráningafresti lýkur er tvöfalt skráningagjald en ekki verður bætt við eftir að ráslistar verða gefnir út.
Mótanefnd áskilur sér rétt til að fella niður eða sameina flokka/greinar ef ekki er næg þáttaka.

Samþykki hefur fengist fyrir nýjum reglum LH um sóttvarnir.

Knapar og aðrir aðstandendur eru beðnir um að kynna sér reglurnar í pdf skrá hér að neðan.

Að auki mun Alendis streyma frá öllu mótinu.

Mótanefnd
Sörla

 

Birtingardagsetning: 
þriðjudaginn, 25. ágúst 2020 - 10:15
Frá: 
Sörli Hestamannafélag, Íþrótt, Lífstíll
Skrár: