Viðburðardagsetning: 
föstudaginn, 8. mars 2019 - 18:00 to laugardaginn, 9. mars 2019 - 11:46

Aðrir vetrarleikar vetrarins fara fram föstudaginn 8. mars og laugardaginn 9. mars að Sörlastöðum í Hafnarfirði.

Skráning fer fram á Sportfeng og lýkur á miðnætti fimmtudaginn 7. mars2019. Ekki er tekið á móti skráningurm símleiðis eða í dómpalli að skráningarfresti loknum.

Skráningargjald er 2500 kr í öllum flokkum, en frítt er fyrir polla og 1500 kr fyrir skeið.

 

Leikarnir hefjast með skeiðkeppni á föstudeginum kl. 18:00. Laugardaginn 9. mars er svo töltkeppni á beinni braut. Dagskrá hefst  kl. 10 með Barnaflokki (rásröð hér að neðan) og lýkur á Pollaflokki inni í reiðhöll.

 

Dagskrá og keppnisflokkar:

Föstudagur kl. 18

-              100 m Skeið

Laugardagur:kl. 10

-              Börn

-              Unglingar

-              Ungmenni

-              Byrjendaflokkur (Opinn flokkur 3)

-              Konur 2 (Opinn flokkur 2)

-              Karlar 2 (Opinn flokkur 2)

-              Heldri menn/konur 55+ (Opinn flokkur)

-              Konur 1 (Opinn flokkur 1)

-              Karlar 1  (Opinn flokkur 1)

-              Opinn flokkur  (Opinn flokkur -Meistaraflokkur)

-              Pollar (reiðhöll)

 

Mótið er ætlað skuldlausum félagsmönnum í hestamannafélaginu Sörla. Hver keppandi má aðeins skrá í einn flokk og eru félagar hvattir til að sýna metnað við skráningu í flokka.

Mótanefnd áskilur sér rétt til að sameina flokka ef ekki er næg þátttaka í einhverjum þeirra.

Vetrarleikar Sörla er þriggja móta röð þar sem verðlaunað er fyrir hvert mót, auk þess sem keppendur safna stigum úr öllum þremur mótunum og verða stigahæstu knaparnir í hverjum flokki verðlaunaðir á síðasta mótinu.

             1.sæti gefur 11 stig

             2.sæti gefur 8 stig

             3.sæti gefur 6 stig

             4.sæti gefur 5 stig

             5.sæti gefur 4 stig

             1 stig fæst fyrir þá sem taka þátt.

Mótanefnd hvetur keppendur að nýta vetrarmótaröðina til að fara út fyrir þægindarammann og leggja metnað í hvaða flokk það skráir sig. Það hefur ekkert fordæmi fyrir því hvaða flokka fólk skráir sig í á stærri mótum.

 

Tölt keppnin fer fram á beinni braut. Allir keppendur í sama flokki eru saman á vellinum. Þeir ríða hver á eftir öðrum til dóms eftir útgefinni rásröð.

Keppt er annars vegar í hægu tölti og hins vegar frjálsri ferð á tölti eftir fyrirmælum þular. Í 100 m skeiðkeppni eru riðnir tveir sprettir og gildir betri tíminn úr öðrum hvorum sprettinum.  Sjá nánar reglur mótaraðarinnar hér:

https://www.sorli.is/tilkynningar/reglur-landsbankam%C3%B3ta-ra%C3%B0ar-...

 

Facebook:

https://www.facebook.com/events/153683122216017/?active_tab=about

Birtingardagsetning: 
föstudaginn, 1. mars 2019 - 11:46
Frá: 
Sörli Hestamannafélag, Íþrótt, Lífstíll