Verða haldnir föstudaginn 5. apríl og laugardaginn 6. apríl. Á þessu þriðja og síðasta móti er keppt í þrígangi. Riðnar eru fjórar ferðir á beinni braut og sýndar 3 gangtegundir að eigin vali. Þrjár hæstu einkunnir gilda. Athugið: Hver knapi getur að hámarki keppt á tveimur hestum.
Opið verður fyrir skráningu á sportfengur.com til miðnættis 2. apríl. Skráningargöld fyrir börn, unglinga og skeið er 2.500 kr.,3.500 kr. fyrir aðra flokka og frítt fyrir polla. Stigatafla fyrri móta verður birt á næstunni.
Rétt er að minna á að einungis þeir sem hafa greitt félagsgjöldin fyrir árið 2019 hafa rétt á að keppa á þessu móti.
Dómarar: Helga Claessen, Jón Þorberg Steindórsson, Davíð Jónsson.
Drög að dagskrá
Athugið að tímasetningar eru einungis áætlaðar en geta breyst þegar skráning liggur fyrir.
Föstudagur 5. apríl kl. 17:00 – 20:00
- Forkeppni barnaflokkur
- Úrslit
- Blönduð forkeppni ungmenni og unglingar
- Úrslit unglingaflokkur
- Úrslit ungmennaflokkur
- 100 m skeið
Laugardagur 6.apríl kl. 09:00 – 16:00
- Blönduð forkeppni fullorðinsflokka
- Hádegishlé
- Pollaflokkur
- Framhald fullorðinsflokka
- Úrslit- byrjendaflokkur
- Úrslit- 2 flokkur konur
- Úrslit- 2 flokkur Karla
- Úrslit- heldri menn og konur
- Úrslit- 1 flokkur konur
- Úrslit- 1 flokkur karlar
- Úrslit- opinn flokkur
Hér eru leiðbeiningar hvernig flokkar eru skilgreindir.
Opinn flokkur. Mikið keppnisvant fólk, bæði atvinnumenn og áhugamenn. Kynjablandaður flokkur. Fólk sem mjög virkt í keppni og hefur áralanga reynslu í keppni.
Opinn flokkur - 1 flokkur. Keppnisvanir knapar, bæði konur og karlar skrá sig hér en flokkurinn er kynjaskiptur í keppni. Fólk sem hefur verið að keppa sem áhugamenn og eru komnir með reynslu í einhverjum keppnisgreinum.
Opinn flokkur - 2 flokkur. Minna vanir knapar, bæði konur og karlar skrá sig hér en flokkur er kynjaskiptur í keppni. Fólk sem hefur lítið keppt eða er að byrja aftur að keppa eftir langt hlé.
Flokkur 55+ heldri menn og konur. Kynjablandaður flokkur fyrir knapa sem eru 55 á árinu eða eldri.
Byrjendaflokkur. Kynjablandaður flokkur fyrir knapa sem hafa aldrei keppt en langar að spreyta sig.
Pollaflokkur. Knapar 9 ára eða yngri á árinu.
Barnaflokkur. Knapar 10 - 13 ára á árinu.
Unglingaflokkur. Knapar 14 - 17 ára á árinu.
Ungmennaflokkur. Knapar 18 - 21 árs á árinu.