Þriðju vetrarleikar Sörla verða haldnir fimmtudaginn 5. apríl og laugardaginn 7. apríl. Á þessu þriðja og síðasta móti er keppt í þrígangi. Riðnar eru fjórar ferðir á beinni braut og gilda þrjár hæstu einkunnir.
Skráning á mótið fer fram á þriðjudaginn 3.apríl milli 18-20 í dómpalli. Skráningargöld fyrir börn, unglinga og skeið er 2.500 kr.,3.500 kr. fyrir aðra flokka og frítt fyrir polla. Stigatafla fyrri móta verður birt á næstunni.
Mótið er opið öllu skuldlausum Sörlafélögum.
Drög að Dagskrá:
Fimmtudagur kl. 17:00
Forkeppni barnaflokkur
Blönduð forkeppni ungmenni og unglingar
úrslit barnaflokkur
úslit unglingaflokkur
úrslit ungmennaflokkur
100 m skeið
Laugardagur kl. 09:00
Fullorðnir Blönduð forkeppni
Hádegishlé
Pollaflokkur
Framhald-fullorðinsflokka
Úrslit- byrjendaflokkur
Úrslit- 2 flokkur konur
Úrslit- 2 flokkur Karla
Úrslit- Heldri menn og konur
Úrslit- 1 flokkur konur
Úrslit- 1 flokkur karlar
Úrslit- opin flokkur
Dagskrá gæti lítillega breyst þegar fjöldi skráninga liggur fyrir. Mótanefnd áskilur sér rétt til að fella niður flokka ef ekki næst næg þátttaka.