Viðburðardagsetning: 
laugardaginn, 1. júní 2019 - 14:30

 

Keppt verður í 100 m Flugskeiði P2 á nýendurgerðri skeiðbraut félagsins sem vakti mikla lukku á nýafstöðnu íþróttamóti félagsins. Því hefur jafnvel heyrt fleygt að hér sé um “bestu skeiðbraut landsins” að ræða – en líklega metur það hver og einn best sjálfur.
Búast má við HÖRKU KEPPNI enda hafa þegar skráð sig til leiks íslandsmeistarar, heimsmeistarar og aðrir snillingar. Íslandsmetshafi í 100 m skeiði Guðmundur Björgvinsson mætir með Glúm frá Þóroddsstöðum, og heimsmetshafi í 250 m skeiði, Konráð Valur Sveinsson mætir með Kjark frá Árbæjarhjáleigu og Losta frá Ekru og Jóhann Magnússon mætir með Fröken frá Bessastöðum en hún á besta tímann á árinu. 
Þetta verður sannkölluð skeiðveisla.

Að vanda verður í boði veitingasala hjá Stebbu í félagsheimilinu.

Skráning fer fram á sportfengur.com og verður tekið á móti skráningum til hádegis á laugardag 1. júní.

Birtingardagsetning: 
miðvikudaginn, 29. maí 2019 - 14:29
Frá: 
Sörli Hestamannafélag, Íþrótt, Lífstíll