Nýhestamót Sörla verður haldið 9. maí kl. 19:00. Skráning verður í dómpalli og hefst kl. 17:00. Skráningargjald er kr. 2.500 og skal greiða um leið og skráð er. Athugið að gefa þarf upp IS númer hests ásamt nafni og kennitölu knapa. Mikilvægt er að upplýsingar séu réttar.
Reglur á Nýhestamóti:
Hestur má ekki hafa unnið til verðlauna árið 2017 eða áður, hvort sem er í Sörla eða annarsstaðar.
Keppendur þurfa að vera félagar í Sörla.
Hestur verður að vera í eigu Sörlafélaga. Keppnisfyrirkomulag:
Keppt er í tölti á beinni braut. Allir keppendur í sama flokki eru saman á vellinum. Þeir ríða hver á eftir öðrum til dóms. Keppt er annars vegar í hægu tölti og hins vegar frjálsri ferð á tölti (fegurðartölti), eftir fyrirmælum þular. Ef keppendur eru 20 eða færri skráðir í flokk skipar dómari 5 efstu hesta í sæti. Séu keppendur 21 eða fleiri skráðir í flokk velur dómari 10 efstu hesta sem ríða úrslit. Að þeim loknum velur dómari 5 efstu hesta í sæti.
Dagskrá og flokkar í boði:
21 árs og yngri
konur
karlar
Með kveðju, Mótanefndin