Viðburðardagsetning: 
laugardaginn, 1. apríl 2017 - 12:00

Nýhestamót Sörla verður haldið laugardaginn 1. apríl kl. 12:00 skv. útgefinni vetrardagskrá Sörla.

Skráning á mótið verður í dómpalli fyrr um daginn eða frá kl. 10.00 - 11.00. Skráningargjald er kr. 2.500 og skal greiða um leið og skráð er. Ekki er posi á staðnum. Athugið að gefa þarf upp IS númer hests ásamt nafni og kennitölu knapa. Mikilvægt er að upplýsingar séu réttar.

Reglur á Nýhestamóti.

  • Hestur má ekki hafa unnið til verðlauna árið 2016 eða áður, hvort sem er í Sörla eða annarsstaðar.
  • Keppendur þurfa að vera félagar í Sörla.
  • Hestur verður að vera í eigu Sörlafélaga. Keppnisfyrirkomulag:

Keppt er í tölti á beinni braut. Allir keppendur í sama flokki eru saman á vellinum. Þeir ríða hver á eftir öðrum til dóms. Keppt er annars vegar í hægu tölti og hins vegar frjálsri ferð á tölti (fegurðartölti), eftir fyrirmælum þular. Ef keppendur eru 20 eða færri skráðir í flokk skipar dómari 5 efstu hesta í sæti. Séu keppendur 21 eða fleiri skráðir í flokk velur dómari 10 efstu hesta sem ríða úrslit. Að þeim loknum velur dómari 5 efstu hesta í sæti.

Dagskrá og flokkar í boði:

  • 21 árs og yngri
  • konur
  • karlar

Með kveðju, Mótanefndin

 

Birtingardagsetning: 
mánudaginn, 27. mars 2017 - 8:08
Frá: 
Sörli Hestamannafélag, Íþrótt, Lífstíll