Viðburðardagsetning: 
laugardaginn, 18. apríl 2015 - 12:00
Vettvangur: 

Nýhestamót Sörla verður haldið laugardaginn 18. apríl kl. 12:00 skv. útgefinni vetrardagskrá Sörla.

Skráning á mótið verður í dómpalli fyrr um daginn eða frá kl. 10.00 - 11.00. Skráningargjald er kr. 2.000 og skal greiða um leið og skráð er.  Ekki er posi á staðnum.

Athugið að gefa þarf upp IS númer hests ásamt nafni og kennitölu knapa. Mikilvægt að rétt nafn knapa sé gefið upp.

Reglur á Nýhestamóti.
- Hestur má ekki hafa unnið til verðlauna árið 2014 eða áður, hvort sem er í Sörla eða annarsstaðar.
- Keppendur þurfa að vera félagar í Sörla.
- Hestur verður að vera í eigu Sörlafélaga.

Keppnisfyrirkomulag:
Keppt er í tölti á beinni braut. Allir keppendur í sama flokki eru saman á vellinum. Þeir ríða hver á eftir öðrum til dóms. Keppt er annars vegar í hægu tölti og hins vegar frjálsri ferð á tölti (fegurðartölti), eftir fyrirmælum þular. Ef keppendur eru 20 eða færri skráðir í flokk skipar dómari 5 efstu hesta í sæti. Séu keppendur 21 eða fleiri skráðir í flokk velur dómari 10 efstu hesta sem ríða úrslit. Að þeim loknum velur dómari 5 efstu hesta í sæti.

Dagskrá og flokkar í boði:
- 21 árs og yngri
- konur
- karlar

Gefin verður út rásröð.

 

Með kveðju, Mótanefndin

Birtingardagsetning: 
þriðjudaginn, 14. apríl 2015 - 21:30
Frá: