Landsbankamót III verður haldið fimmtudaginn 6 apríl til 8. apríl Opið er fyrir skráningu á sportfengur.com og er hún opin út 4. apríl. Rétt er að minna á að einungis þeir sem hafa greitt félagsgjöldin fyrir árið 2017 hafa rétt á að keppa á þessu móti.
Drög að dagskrá
Fimmtudagur 6. apríl 18:00
Skeið
Föstudagur kl. 17:00
Forkeppni barnaflokkur
Blönduð forkeppni ungmenni og unglingar
Hlé
úrslit barnaflokkur
úslit unglingaflokkur
úrslit ungmennaflokkur
Laugardagur kl. 09:00
Fullorðnir Blönduð forkeppni
Hádegishlé
Pollaflokkur
Framhald-fullorðinsflokka
Úrslit- byrjendaflokkur
Úrslit- 2 flokkur konur
Úrslit- 2 flokkur Karla
Úrslit- Heldri menn og konur
Úrslit- 1 flokkur konur
Úrslit- 1 flokkur karlar
Úrslit- opin flokkur
Verlaunaafhending verður í reiðhöll að móti loknu.
Hér eru leiðbeiningar hvernig flokkar eru skilgreindir í sportfeng.
- Opinn flokkur. Mikið keppnisvant fólk, bæði atvinnumenn og áhugamenn. Kynjablandaður flokkur. Fólk sem mjög virkt í keppni og hefur áralanga reynslu í keppni.
- Opinn flokkur - 1 flokkur. Keppnisvanir knapar, bæði konur og karlar skrá sig hér en flokkurinn er kynjaskiptur í keppni. Fólk sem hefur verið að keppa sem áhugamenn og eru komnir með reynslu í einhverjum keppnisgreinum.
- Opinn flokkur - 2 flokkur. Minna vanir knapar, bæði konur og karlar skrá sig hér en flokkur er kynjaskiptur í keppni. Fólk sem hefur lítið keppt eða er að byrja aftur að keppa eftir langt hlé.
- Meira vanir. Flokkur 55+ heldri menn og konur. Kynjablandaður flokkur fyrir knapa sem eru 55 á árinu eða eldri. Þeir sem kepptu í þessum flokk í fyrra (þá 50+) mega halda áfram að keppa í þessum flokk.
- Minna vanir Byrjendaflokkur. Kynjablandaður flokkur fyrir knapa sem hafa aldrei keppt en langar að spreyta sig.
- Pollaflokkur. Knapar 9 ára eða yngri á árinu.
- Barnaflokkur. Knapar 10 - 13 ára á árinu
- Unglingaflokkur. Knapar 14 - 17 ára á árinu
- Ungmennaflokkur. Knapar frá 18 - 21 ára á árinu