Viðburðardagsetning: 
laugardaginn, 12. mars 2016 - 12:00

Nú er opið fyrir skráningu á Landsbankamót II. Vinsamlega athugið að mótið hefur verið fært fram um viku frá auglýstri dagskrá. Einnig hafa verið gerðar breytingar á röðun keppnisflokka vegna karlatölts Spretts. Hafa því karlaflokkar verið færðir framar í dagskrá.

Dagskrá og keppnisflokkar:

  • Pollar teymdir
  • Pollar
  • 100 m Skeið
  • Ungmenni
  • Karlar 2 
  • Karlar 1  
  • Opinn flokkur
  • Heldri menn/konur 55+
  • Börn
  • Unglingar
  • Byrjendaflokkur
  • Konur 2
  • Konur 1

Pollar keppa inni í reiðhöllinni

Mótið er ætlað skuldlausum félagsmönnum í hestamannafélaginu Sörla. Hver keppandi má aðeins skrá í einn flokk og eru félagar hvattir til að sýna metnað við skráningu í flokka. Mótanefnd áskilur sér rétt til að sameina flokka ef ekki er næg þátttaka í einhverjum þeirra.

Landsbankamótaröðin er þriggja móta röð þar sem verðlaunað er fyrir hvert mót, auk þess sem keppendur safna stigum úr öllum þremur mótunum og verða stigahæstu knaparnir í hverjum flokki verðlaunaðir á síðasta mótinu.

1.sæti gefur 11 stig

2.sæti gefur 8 stig

3.sæti gefur 6 stig

4.sæti gefur 5 stig

5.sæti gefur 4 stig

6. - 10. sæti gefa 3 stig

1 stig fæst fyrir þá sem taka þátt.

Á þessu móti er keppt í tölti á beinni braut. Allir keppendur í sama flokki eru saman á vellinum. Þeir ríða hver á eftir öðrum til dóms eftir útgefinni rásröð. Keppt er annars vegar í hægu tölti og hins vegar frjálsri ferð á tölti eftir fyrirmælum þular. Auk þessa er keppt í 100 m. skeiði. Riðnir tveir sprettir og gildir besti tíminn úr öðrum hvorum sprettinum.  Sjá nánar reglur mótraðarinnar hér:  

Mótanefnd hvetur keppendur að nýta vetrarmótaröðina til að fara út fyrir þægindarammann og leggja metnað í hvaða flokk það skráir sig. Það hefur ekkert fordæmi fyrir því hvaða flokka fólk skráir sig í á stærri mótum. Hér að má sjá hvernig flokkarnir eru skráðir í sportfeng og nánari lýsing á þeim.

Annað - Opinn flokkur.  Mikið keppnisvant fólk, bæði atvinnumenn og áhugamenn. Kynjablandaður flokkur.  Fólk sem mjög virkt í keppni og hefur áralanga reynslu í keppni.

Annað - Opinn flokkur - 1 flokkur.   Keppnisvanir knapar, bæði konur og karlar skrá sig hér en flokkurinn er kynjaskiptur í keppni. Fólk sem hefur verið að keppa sem áhugamenn og eru komnir með reynslu í einhverjum keppnisgreinum.

Annað - Opinn flokkur - 2 flokkur.  Minna vanir knapar, bæði konur og karlar skrá sig hér en flokkur er kynjaskiptur í keppni.  Fólk sem hefur lítið keppt eða er að byrja aftur að keppa eftir langt hlé.

Annað - Meira vanir.  Flokkur 55+ heldri menn og konur.  Kynjablandaður flokkur fyrir knapa sem eru 55 á árinu eða eldri.  Þeir sem kepptu í þessum flokk í fyrra (þá 50+) mega halda áfram að keppa í þessum flokk.

Annað - Annað.  Byrjendaflokkur.  Kynjablandaður flokkur fyrir knapa sem hafa aldrei keppt en langar að spreyta sig.

Annað - Pollaflokkur.  Knapar 9 ára eða yngri á árinu.  Keppnin verður inni í reiðhöll

Barnaflokkur = Knapar 10 - 13 ára á árinu

Unglingaflokkur = Knapar 14 - 17 ára á árinu

Ungmennaflokkur = Knapar frá 18 - 21 ára á árinu

Skráningargjald er það sama og í fyrra kr. 2000 fyrir alla flokka nema polla kr. 500 

Skráning. sportfengur.com  Leiðbeiningar við skráningu í Sportfeng.pdf Skráning er opin og lýkur á miðnætti á fimmtudag 10. mars. Athugið að ekki er tekið við skráningum á annan hátt.

Með kveðju Mótanefndin.

 

Efnisorð: 
Birtingardagsetning: 
þriðjudaginn, 8. mars 2016 - 8:56