Viðburðardagsetning: 
föstudaginn, 10. apríl 2015 - 9:19
Vettvangur: 

Landsbankamót III og það síðasta í vetrarmótaröð Sörla verður haldið helgina eftir páska eða 10. og 11. apríl að Sörlastöðum. Þetta er mjög skemmtilegt mót, bæði fyrir þátttakendur og áhorfendur. Keppt er í þrígangi og í100 m. skeiði. 

Mótið er opið öllum skuldlausum Sörlafélögum við félagið.  Munið að greiða félagsgjöldin þau ykkar sem ætla að keppa.

 

Skráning:
Á þessu móti mega keppendur skrá fleiri en einn hest í keppni en aðeins í einn flokk fyrir utan skeiðið.

Opnað hefur verið fyrir skráningu og líkur henni þriðjudaginn 7.apríl á miðnættiSkráning fer fram í gegnum Sportfeng(link is external)

Athugið að ekki er tekið við skráningum á annan hátt.  Hægt er að greiða með visa eða með millifærslu í gegnum Sportfeng. Skráningagjöldin eru 2500 kr. nema fyrir skeið=1.500 og polla=1.000.

Í sportfeng er valin keppnisgreinin Þrígangur og þann flokk sem þið veljið að keppa í.  
 
Athugið að:
  • "3 flokkur" = "minna vanir" í sportfeng og
  • "heldri menn/konur 50+" = "annað" í sportfeng.
  •  
  • Polla þarf að skrá í með því velja keppnisgreinina Annað og svo flokkinn annað í Sportfeng.

 

Ef einhverjir lenda í vandræðum með skráningu þá eru þeir einstaklingar beðnir um að hafa samband við mótanefnd með tölvupósti á netfangið motanefndsorla@gmail.com fyrir lokun skráningar.  Best er að skrá sem fyrst svo ekki komi til vandræða rétt fyrir lokun skráningarfrest.

 

Fyrirkomulag:

Sýna skal a.m.k. þrjár gangtegundir í fjórum ferðum. Knapi hefur sjálfur val um hvaða gangtegundir hann sýnir, en sýna ber þrjár af fimm viðurkenndum gangtegundum íslenska hestsins. Dómskali gæðingakeppni gildir. Gefin er ein einkunn fyrir tölt. Ef bæði er sýnt hægt og greitt tölt gildir hærri einkunn. Í 100m skeiði eru riðnir tveir sprettir og gildir besti tíminn úr öðrum hvorum sprettinum.

Keilur afmarka þar sem hestur er í dómi. Keppandi skal vera tilbúinn á brautarenda þegar knapi á undan er í braut. (Sjá nánar reglur Landsbankamótaraðar hér)

 

Drög að dagskrá:
Athugið að dagskrá getur riðlast v. forfalla hesta. Knapar verða því að fylgjast vel með dagsskrá og fyrirmælum þular. Útvarpað verður frá mótinu á útvarpstíðninni 106,1 .

Föstudagur 10. apríl
kl. 18:00
Unglingar og ungmenni (forkeppni blönduð)
Úrslit unglingar
Úrslit ungmenni
Skeið

Laugardagur 11. apríl
kl 10:00
Börn
Fullorðnir (forkeppni blönduð úr öllum flokkum)
Hádegishlé
Pollar
Fullorðnir (forkeppni blönduð úr öllum flokkum)
Úrslit 3.flokkur
Úrslit 2. flokkur
Úrslit 50+
Úrslit 1. flokkur
Úrslit Opinn flokkur

Stigakeppni knapa:
Stigin reiknast eftir forkeppni. Ef knapar eru jafnir að stigum eftir þriðja og síðasta mótið þá raðast keppendur þannig að sá sem verður hærri i úrslitum vinnur hlýtur hærra sætið i stigakeppni knapa.

Verðlaunaafhending fyrir stigahæstu knapana er strax að loknu móti í félagssal Sörla.

Kveðja Mótanefndin.

 

Efnisorð: 
Birtingardagsetning: 
föstudaginn, 3. apríl 2015 - 9:19
Frá: 
Mótaröð Sörla & Landsbankans