Viðburðardagsetning: 
fimmtudaginn, 14. maí 2020 - 0:00

 

Ákveðið hefur verið að halda Hafnarfjarðameistaramót Sörla á Hraunhamarsvellinum skv. dagskrá dagana 14. – 17. maí. 

 

Til að mótið geti farið fram verðum við að treysta á að keppendur og áhorfendur vinni með okkur að fylgja öllum reglum almannavarna sem munu gilda á þessum tíma. 

Mikilvægt er að passa uppá 2 metra regluna hvort sem er keppendur eða áhorfendur. 

Verið er að vinna í og að öllum líkingum verður streymt frá mótinu.  

Mótið verður opið öllum keppendum. 

 
Skráning á mótið mun standa yfir frá 1. maí og til miðnættis föstudaginn 8.maí.

Ef keppendur óska eftir að skrá eftir að skráningarfresti lýkur er greitt tvöfalt skráningargjald. 

Skráning fer fram í gegnum Sportfeng.

Mótanefnd áskilur sér rétt til að fella niður eða sameina flokka/greinar ef ekki er næg þátttaka. 

Takmarkað verður  þáttöku og í hverri grein eru 20 keppendur leyfðir. 

 

Keppnisgreinar eru eftirfarandi :

  • Meistaraflokkur: T1, T2, V1, F1, Gæðingaskeið PP1
  • 1 flokkur: T3, T4, V2, F2. Gæðingaskeið PP1 
  • 2 flokkur: T3, T7, V2, F2 
  • Ungmenni: T3, T4, V2, F2. 
  • Unglingar: T3, V2, F2
  • Börn: T3. T7, V2
  • 100 m skeið P2.
  • Gæðingaskeið PP1  21árs og yngri. 

Skráningagjöld eru eftirfarandi:

Barnaflokkur og unglingaflokkur: 4000 kr.
Ungmennaflokkur, 2. flokkur, 1. flokkur og meistaraflokkur: 5000 kr.

Gæðingaskeið – 5000 kr

100m skeið – 3500 kr

Einungis þeir sem hafa greitt félagsgjöldin sín hafa keppnisrétt á mótinu.

Allar afskráningar og fyrirspurnir skulu berast á  motanefnd@sorli.is


 

 

Birtingardagsetning: 
þriðjudaginn, 28. apríl 2020 - 16:30
Frá: 
Sörli Hestamannafélag, Íþrótt, Lífstíll