Viðburðardagsetning: 
föstudaginn, 28. ágúst 2015 - 12:00 to laugardaginn, 29. ágúst 2015 - 12:00
Vettvangur: 

Gæðingaveisla Sörla og Mána verður haldin dagana 28. og 29. ágúst að Sörlastöðum í Hafnarfirði.

Eftirfarandi flokkar verða í boði:

Barnaflokkur

Unglingaflokkur

Ungmennaflokkur

A - flokkur áhugamanna

B - flokkur áhugamanna

A - flokkur

B - flokkur

100 m. skeið

Skráning er hafin á sportfengur.com, velja þarf aðildarfélag Máni. Skráningu lýkur þriðjudaginn 25. ágúst kl. 23:59

Skráningargjaldið er 5.000.- í fullorðinsflokka og skeið, 3.500.- í yngri flokka. 

Glæsileg verðlaun í boði, 100.000,- peningaverðlaun fyrir 1. sæti í A og B flokki, 50.000,- peningaverðlaun fyrir 1. sæti í A og B flokki áhugamanna og skeiði ásamt fullt af fleiri glæsilegum vinningum í öllum flokkum!

Verðlaunaafhending fer fram í lokahófi þar sem viðstaddir þátttakendur fá "Tilboð aldarinnar" frá Hamborgarabúllunni ásamt möguleika á happadrættisvinningi.

Endilega finnið viðburðinn okkar á Facebook undir nafninu Gæðingaveisla Sörla og Mána 2015 . Þar koma inn allar helstu upplýsingar og einkunnir á meðan mótinu stendur.

Hlökkum til að sjá ykkur í Hafnafirði! :)

Gæðingaveislunefndin

Birtingardagsetning: 
laugardaginn, 22. ágúst 2015 - 0:32