Vetrarleikum 2 frestað um viku, þeir verða haldnir laugardaginn 6.mars.
Búið er að lengja í skráningu á Vetrarleika 2, hægt er að skrá í dag föstudag 26.feb til kl 21:00, Sportfengur er búinn að vera eitthvað leiðinlegur, einnig er hægt að skrá sig með því að senda tölvupóst á motanefnd@sorli.is
2. Vetrarleikar vetrarins verða haldnir laugardaginn 27. febrúar. Hefst það stundvíslega kl.11:30 að Sörlastöðum í Hafnarfirði.
Keppnisflokkar:
Pollar
Börn
Unglingar minna vanir
Unglingar
Ungmenni
Byrjendaflokkur
Konur 2
Karlar 2
Heldri menn/konur 55 ára og eldri
Konur 1
Karlar 1
Opinn flokkur
100 m Skeið
Pollar keppa inni í reiðhöllinni
Mótið er ætlað skuldlausum félagsmönnum í hestamannafélaginu Sörla. Hver keppandi má aðeins skrá í einn flokk og eru félagar hvattir til að sýna metnað við skráningu í flokka. Mótanefnd áskilur sér rétt til að sameina flokka ef ekki er næg þátttaka í einhverjum þeirra.
Vetrarleikar Sörla er þriggja móta röð þar sem verðlaunað er fyrir hvert mót, auk þess sem keppendur safna stigum úr öllum þremur mótunum og verða stigahæstu knaparnir í hverjum flokki verðlaunaðir á síðasta mótinu.
1.sæti gefur 11 stig
2.sæti gefur 8 stig
3.sæti gefur 6 stig
4.sæti gefur 5 stig
5.sæti gefur 4 stig
1 stig fæst fyrir þá sem taka þátt.
Á þessu móti er keppt í tölti á beinni braut. Allir keppendur í sama flokki eru saman á vellinum. Þeir ríða hver á eftir öðrum til dóms eftir útgefinni rásröð. Keppt er annars vegar í hægu tölti og hins vegar frjálsri ferð á tölti eftir fyrirmælum þular. Auk þessa er keppt í 100 m. skeiði. Riðnir eru tveir sprettir og gildir betri tíminn úr öðrum hvorum sprettinum. Sjá nánar reglur mótaraðarinnar hér:
Mótanefnd hvetur keppendur að nýta vetrarmótaröðina til að fara út fyrir þægindarammann og leggja metnað í hvaða flokk það skráir sig. Það hefur ekkert fordæmi fyrir því hvaða flokka fólk skráir sig í á stærri mótum. Hér má sjá hvernig flokkarnir eru skráðir í sportfeng og nánari lýsing á þeim.
Tölt T1- Opinn flokkur-Meistaraflokkur. Mikið keppnisvant fólk, bæði atvinnumenn og áhugamenn. Kynjablandaður flokkur. Fólk sem mjög virkt í keppni og hefur áralanga reynslu í keppni.
Tölt T1- Opinn flokkur - 1 flokkur. Keppnisvanir knapar, bæði konur og karlar skrá sig hér en flokkurinn er kynjaskiptur í keppni. Fólk sem hefur verið að keppa sem áhugamenn og eru komnir með reynslu í einhverjum keppnisgreinum.
Tölt T1 - Opinn flokkur - 2 flokkur. Minna vanir knapar, bæði konur og karlar skrá sig hér en flokkur er kynjaskiptur í keppni. Fólk sem hefur lítið keppt eða er að byrja aftur að keppa eftir langt hlé.
Tölt T1-Opinn flokkur Flokkur 55+ heldri menn og konur. Kynjablandaður flokkur fyrir knapa sem eru 55 á árinu eða eldri. Þeir sem kepptu í þessum flokk í fyrra (þá 50+) mega halda áfram að keppa í þessum flokk.
Tölt T1 – opinn flokkur-3 flokkur Byrjendaflokkur. Kynjablandaður flokkur fyrir knapa sem hafa aldrei keppt en langar að spreyta sig.
Pollaflokkur. Knapar 9 ára eða yngri á árinu. Keppnin verður inni í reiðhöll
Barnaflokkur = Knapar 10 - 13 ára á árinu
Unglingaflokkur = Knapar 14 - 17 ára á árinu. Vegna mikillar aukningar í unglingaflokk höfum við ákveði að bæta við flokki. Unglingar minna vanir. (T3 unglingaflokkur í sportfeng)
Ungmennaflokkur = Knapar frá 18 - 21 ára á árinu
Skráningargjald er 2500 kr í öllum flokkum, en frítt er fyrir polla og 1500 kr fyrir skeið.