Fyrirlestur um fóðrun hrossa og kynning á fóðri frá Fóðurblöndunni á Sörlastöðum miðvikudaginn 8. janúar kl. 20:00 – aðgangur ókeypis.
Einar Ásgeirsson, Fóðurfræðingur Fóðurblöndunnar mun fjalla um fóðrun reiðhesta yfir vetrartímann og mismunandi fóðurþarfir hrossa.
Áhersla verður lögð á fóðrun íþróttahesta. Einnig verður kynning á fóðri Fóðurblöndunnar sem nýta má til að uppfylla fóðurþarfir og ná árangri með ykkar hross.
Á eftir kynningunni hans Einars ætlum við að kynna og dreifa vetrardagská félagsins, fara yfir helstu viðburði, námskeið o.fl sem verður í boði í vetur.
Viðburðardagsetning:
miðvikudaginn, 8. janúar 2020 - 20:00
Vettvangur:
Birtingardagsetning:
föstudaginn, 3. janúar 2020 - 14:59