Stjórnarfundur Sörla
Fundur nr.: 7 – 2017
Staður og stund: Sörlastaðir, mánudagur, 30. janúar 2017
Mættir: Thelma Víglundsdóttir, Valka Jónsdóttir, Þórunn Ansnes, Eggert Hjartarson, Atli Már Ingólfsson, Einar Örn Þorkelsson
Fjarverandi: Hanna Rún Ingibergsdóttir
Ritari fundar: Valka Jónsdóttir
Rekstrarsamningur
Samningur við Hafnarfjarðarbæ er tilbúinn til undirritunar. Er hann á pari við fyrra ár en að auki fékkst aukafjárveiting fyrir eldvarnargluggum á Sörlastöðum og fyrir viðhaldi á reiðhöll vegna leka.
Myndavél.
Sörli hefur fengið gefins myndavél frá Ljósmyndavörum hf. Hún er ryk-, vatns- og höggheld. Hún er ætluð fyrir nefndir til að taka myndir af viðburðum svo Sörli geti haldið utan um sögu hvers ár í myndum og auðvelda utanumhald og vera með skemmtilegt myndaefni með fréttaflutning frá viðburðum.
Verkefni og áherslur 2017
Farið var í hugarflugsvinnu varðandi verkefni og áherslur ársins. Margar góðar hugmyndir fæddust og var byrjað að forgangsraða verkefnunum. Þeirri vinnu er ekki lokið.
Önnur mál
Ásgeir Margeirsson kemur á fund stjórnar 13. febrúar til að ræða verkefni sem hann hefur stýrt um byggingu nýrrar reiðhallar.
Félögum í lávarðardeildinni verður boðið á stjórnarfund 27. febrúar.
Flóttamenn búsettir í Hafnarfirði koma í heimsókn þann sunnudaginn 26. febrúar.
Fundi slitið kl. 22