Stjórnarfundur Sörla nr. 13 - 2017 Sörlastaðir, þriðjudagur 2. maí 2017
Mættir: Thelma Víglundsdóttir, Valka Jónsdóttir, Atli Már Ingólfsson, Þórunn Ansnes, Eggert Hjartarson
Fjarverandi: Einar Örn Þorkelsson, Hanna Rún Ingibergsdóttir
Gestir: Gunnar Kjartansson og Magnús Scheving
Ritari fundar: Valka Jónsdóttir
Gunnar Kjartansson og Magnús Scheving Thorsteinsson nýir eigendur Íshesta komu í heimsókn til að ræða ýmis sameiginleg málefni Sörla og Íshesta.
Rætt var um mögulegt samstarf á breiðum vettvangi sem dæmi reiðskóli fyrir börn, mótshald s.s. gæðingaveisla í ágúst, álag á reiðvegum og viðhald þeirra og umhverfismál, tiltekt og viðhald á húsum og svæði Íshesta.
Fundarmenn voru sammála um að vinna að sameiginlegum hagsmunum. Var ákveðið að bjóða bæjarstjóra og öðrum bæjarfulltrúum í heimsókn til Sörla og Íshesta. Markmiðið er að sína þeim svæðið og aðstöðuna, bjóða þeim jafnvel á bak og auka samtalið við bæinn.
Fundi slitið kl. 21