STJÓRNARFUNDUR Í SÖRLA.      28. Janúar  2014 

Fundurinn settur kl. 19,00. 

1.       Fundargerðir  síðastu  funda  samþykktar.

2.       Páll Ólafsson upplýsti stjórn um stöðu mála og undirbúning og vinnu fyrir 70 ára  afmælisfagnað og árshátíð Sörla.

3.       Fundur með  þeim sem hafa atvinnu sína af hestamennsku og eru í Sörla.  Var þar mest rætt um hvernig skuli staðið að lyklamálum að reiðhöllinni og  opnunartíma hennar.  Eins var rætt um þær endurbætur sem gera þar.  Var mönnum tíðrætt um bágt ástand á gólfinu í reiðhöllinni, sem er bæði mishæðótt og hart.   Ákveðið var að fá verktaka til að fara í málið af fagmennsku, og fá þetta í gott lag.  Ásgeir Margeirsson mun taka þetta mál að sér fyrir hönd Sörla.   Varðandi lyklamálið þá var eftirfarandi ákveðið: Lykill nr 1, veitir aðgang frá klukkan 7 að morgni til miðnættis.  Þar rukkast kr. 20.000 í árgjald.  Ef fleiri en tveir aðilar tilheyra sömu rekstrareiningu  eða fjölskyldu, nægir að kaupa tvo lykla.    Sama gildir um lykil nr. 2,  3.000 krónur í árgjald.  Sem gildir frá kl. 14 til miðnættis.  Tveir lyklar duga hverri fjölskyldu.  Hægt er að kaupa mánaðarlykil á kr. 5.000 sem gildir frá kl. 7 að morni til miðnættis. Á helgum er aðgangur opinn öllum lykilhöfum frá 7 að morgni til miðnættis fyrir utan þau skipti þegar reiðhöllin er lokuð vegna námskeiða  eða annara viðburða á vegum hestamanna.    Börn 12 ára og yngri þurfa að vera í flylgd með fullorðnum í reiðhöllinni, þeim er því ekki seldur aðgangslykill.  Einnig skal það áréttað að aðeins skuldlausir félagsmenn Sörla geta keypt aðgangslykil að reiðhöllinni.

4.       Íslandsmót.  Ljóst er að ekki gengur upp að hafa Íslandsmótið  2014 í Sörla og mun það færast yfir til Fáks.  Stefnt er að því að Íslandsmótið verði  næst  þar á eftir  hjá Sörla.

5.       Í tilefni af 70 ára afmæli  Sörla ákveður stjórnin að gera eftirtalda aðila að heiðursfélögum:

Guðrún Bruun Madsen, Gunnar Örn Ólafsson, Inga María Eyjólfsdóttir, Vilhjálmur Ólafsson og Þorbjörg  Fjóla Sigurðardóttir. 

Jafnframt skulu eftirtaldir aðilar hljóta gullmerki Sörla:

Erlingur  Ingi Sigurðsson, Hilmar Bryde, Höskuldur Ragnarsson, Ingvar Teitsson, Jón Oddsson og Þorvaldur Friðþjófsson.

 

Ekki fleira gert og fundi slitið kl. 21,30

Mættir:  Magnús, Thelma , Þórunn,  Sigurður, Ásgeir  og Haraldur.  Eggert boðaðið forföll.

Birtingardagsetning: 
þriðjudaginn, 28. janúar 2014 - 19:00
Viðburðardagsetning: 
þriðjudaginn, 28. október 2014 - 19:00
Frá: 
Vettvangur: