Stjórnarfundur í Sörla 4. desember 2014

Fundur settur kl 20:10. Mættir voru Páll Ólafsson, Hlynur Árnason, Eggert Hjartarson, Sigurður Ævarsson, Þórunn Ansnes , Brynja Björk Garðarsdóttir og Thelma Víglundsdóttir. Ásgeir Margeirsson boðaði forföll.

  1. Framkvæmdir í Hlíðarþúfum. Fyrirspurn frá tæknideild bæjarins. Húseigendafélag Hlíðarþúfna  hóf framkvæmdir í haust við að gera nýtt reiðgerði sem rammaðist innan þess svæðis sem er skipulagt fyrir Hlíðarþúfur. Ekki var sótt um leyfi fyrir þessu áður en að  framkvæmdir hófust . Verið  er að leysa þetta í samvinnu við Hafnarfjarðarbæ. Þetta  hefur hlotið jákvæðar undirtektir hjá bænum  og er verið að teikna upp verkefnið fyrir næsta byggingarfulltrúafund hjá Hafnarfjarðarbæ.
  2. Bréf til stjórnar Sörla frá Eggerti Hjartarsyni stjórnarmanni. Málið rætt.
  3. Starfsmannamál. Einstaklingur á vegum vinnumálastofnunar mætti í kynningarviðtal þann 1. desember síðastliðinn en hægt er að fá styrk frá Hafnarfjarðarbæ með honum sem atvinnuúrræði. Ákveðið var að gjaldkeri skilaði útreikningum um þá kosti sem eru í stöðunni til að mynda varðandi starfshlutfall tilvonandi starfsmanns til þess að stjórnin geti tekið ákvörðun varðandi ráðninguna.
  4. Málefni Sigrúnar Sigurðardóttur íþróttastjóra. Fræðslunefnd og æskulýðsnefnd áttu góðan fund með íþróttastjóra nýverið og leggur formaður til að samið verði við íþróttastjóra til lengri tíma en árs í senn. Ákveðið að boðað verði til fundar og samið til lengri tíma.
  5. Önnur mál.
    1. Rætt var um þarfir mótanefndar fyrir komandi keppnisár. Haft hefur verið samband við rafvirkja á vegum félagsins sem er tilbúinn til þess að aðstoða við þá þætti sem þarf að bæta. Nauðsynlegt er að boða rafvirkjann á fund og fara yfir kort af svæðinu og það sem þarf að gera. Æskilegt væri að formaður mótanefndar mæti á þann fund ásamt Hlyni Árnasyni stjórnarmanni.
    2. Nauðsynlegt er einnig að bæta undirlagið á keppnisvellinum sem hefur sigið töluvert. Sigurður nefnir að undirlag hjá Fáki hafi reynst vel. Málið verður rætt frekar á næsta fundi.
    3. Fjármál nefnda. Gjaldkeri leggur til að nefndir taki þátt í kostnaði þeim er varðar sérstaklega þá þætti sem snúa að þeim, líkt og í tilfelli mótanefndar nú.
    4. Hestadaganefnd. Friðdóra Friðriksdóttir og Thelma Víglundsdóttir taka að sér að vera fulltrúar Sörla í hestadaganefnd 2015 en lagt er til að fleiri komi að málinu þar sem margar hendur vinna létt verk.
    5. Sörlastaðanefnd. Kominn er hugur í nefndina og næsta verkefni sem á að ráðast í er að bæta hljóðvistina í veislusalnum. Formaður Sörla átti fund með nefndinni og málið í farvegi. Þórunn Ansnes ásamt formanni mun fylgja málinu eftir.
    6. Reikningar v/viðhalds reiðvega. Uppsafnaðir reikningar frá síðustu tveimur vetrum. Magnús Flygenring mun útvega yfirlit yfir vinnuna og Hafnarfjarðarbæ verður sendur reikningur.
    7. Félagsfundir. Þórunn Ansnes leggur til að félagsfundum sé fjölgað til þess að auka samtal milli félagsmanna og heyra fleiri sjónarmið. Viðstaddir taka undir það.
    8. Skötuveisla. Stefanía Sigurðardóttir mun sjá um skötuveisluna í ár.
    9. Dagskrá vetrarins. Dagskráin er nánast klár en vantar dagsetningar frá æskulýðsnefnd. Dagskráin verður prentuð út og plöstuð samkvæmt hefð og dreift í hesthúsin. Stjórnarmenn munu dreifa dagskránni í hesthúsin.

Fleira var ekki rætt. Fundi slitið kl 22:30

 

 

Birtingardagsetning: 
fimmtudaginn, 4. desember 2014 - 20:00
Viðburðardagsetning: 
fimmtudaginn, 4. desember 2014 - 20:00
Frá: 
Vettvangur: