Haldinn að Sörlastöðum 22. október 2015 kl. 20:00
Fundargerð
Fundinn sátu um 60 félagsmenn
1. Setning fundar
Formaður Sörla, Páll Ólafsson, setur fundinn og býður fundarmenn velkomna.
2. Fallins félaga minnst
Formaður biður fundarmenn að rísa úr sætum og minnast fallins félaga, Halldórs Einarssonar á Setbergi, sem lest s.l. sumar, með einnar mínútu þögn.
3. Kosning fundarstjóra og fundarritara
Formaður stingur upp á að Darri Gunnarsson taki að sér stjórn fundarins og að Ásgeir Margeirsson taki að sér ritun fundargerðar. Samþykkt einróma.
4. Félagatal
Þórunn Ansnes fer yfir félagatalið. Í dag eru félagar 763, hefur fækkað um 122 frá fyrra ári, en þá voru þeir 885. Ástæða fækkunar er tiltekt í félagskrá, en þar voru margir gamlir og óvirkir félagar. Greiðandi félagsmenn eru um 500. Þessi fækkun leiðir líklega til fækkunar sæta Sörla í keppni á Landsmótum.
5. Skýrsla stjórnar
Formaður flytur skýrslu stjórnar. Stjórn hélt 12 fundi á árinu auk vinnufunda og funda með ýmsum aðilum. Félagsstarf var mikið og fjölbreytt starf í nefndum. Hann nefndi atriði eins og tilnefningu íþróttamanna Sörla, styrki í afreksmannasjóði, vetrardagskrá sem dreift var í hesthús, vinnu við eignaskiptasamning við Hafnarfjarðarbæ, endurskoðun rekstrarsamninga við Hafnarfjarðarbæ og vinnu við nýtt deiliskipulag á Sörlastöðum.
Félagsgjöld voru kr. 7.000. Mistök voru í innheimtu á síðasta ári, sem ollu truflun á innheimtu. Nýtt gólf var sett í reiðhöll og vekur það mikla ánægju. Keppnisvellir voru heflaðir og á þá lagt nýtt yfirborðsefni, sem hefur gefist vel. Fjárfest var í tveim fartölvum og fimm spjaldtölvum. Bæta þarf netsamband á Sörlastöðum. Sörlastaðanefnd vann áfram öflugt starf og hefur nýverið stórbætt hljóðvist í sal með nýrri klæðningu í loft.
Reiðskóli Sörla og Íshesta starfaði sem fyrr, en nú í styttri tíma að ósk Íshesta. Skráningar á kynbótasýningar voru frekar fáar. Sörli tók þátt í Hestadögum og var með opið hús. Í október var nefndagrill, með heiðursfélögum og Lávarðadeild.
Brynja Björk Garðarsdóttir lét af störfum rekstrarstjóra. Þórunn Ansnes var ráðin í starfið og hefur nú verið ráðin í fullt starf framkvæmdastjóra. Eggert Hjartarson lét af tímabundum störfum í umsjón. Bjarni Ansnes var ráðinn tímabundið í starfið og hefur lokið störfum. Sigrún Sigurðardóttir lætur af störfum sem íþróttastjóri um áramót.
Ásgeir Margeirsson kynnti vinnu við gerð nýs deiliskipulags fyrir Sörlastaði. Mjög áhugavert mál og afar mikilvægt fyrir framtíð Sörla.
6. Reikningar félagsins
Þórunn Ansnes kynnir milliuppgjör fyrir fyrstu átta mánuði ársins. Gjöld eru kr. 26.682.483 Tekjur eru kr. 27.139.333, fjármagnsliðir kr. 12.900 og tekjur umfram gjöld tímabilsins kr. 469.750. Framkvæmdir sem áður komu fram í skýrslu stjórnar eru hér gjaldfærðar, en eitthvað af þeim kostnaði verður líklega eignfærður fyrir lok árs.
Fastafjármunir eru kr. 50.049.093 og veltufjármunir kr. 14.762.737. Eigið fé er kr. 63.692.657 og skuldir kr. 1.116.983.
7. Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga félagsins
Fundarstjóri gefur orðið laust. Rætt var um fækkun félaga skv. skýrslu stjórnar og þátttöku á Landsmótum og greiðslur til LH, sem lækka samfara fækkun félagsmanna. Spurt var um kostnað við nýja og stærri reiðhöll. Upplýsingar liggja enn ekki fyrir, enda málið á skipulagsstigi enn sem komið er og hönnun nýs húss ekki hafin. Einnig spurt um hvenær nýtt hús geti verið risið. Ekki er til svar við því enn. Ennfremur spurt um rekstrarkostnað samfara nýju húsi. Það á eftir að skoða í samhengi við rekstrarsamning við Hafnarfjarðarbæ.
Framtíðarsýn skipulagshugmyndanna var fagnað af fundarmönnum og stjórn hvött til að vinna áfram ötullega að málinu.
Rætt var um afgirtan reiðveg fyrir tryppareið og/eða rekstrarhring.
Skýrsla stjórnar og milliuppgjör var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum.
8. Kynning á starfi nefnda.
Formenn/fulltrúar nefnda segja fá starfinu á árinu.
Ferðanefnd Kristján Jónsson
Laganefnd Magnús Sigurjónsson (engin mál)
Fræðslunefnd Sagt frá í fjarveru Snorra Rafns Snorrasonar
Reiðveganefnd Haraldur Guðfinnsson
Kynbótanefnd Vilhjálmur Karl Haraldsson
Skemmtinefnd Bjarney Grendal Jóhannesdóttir
Mótanefnd Valka Jónsdóttir
Æskulýðsnefnd Hafdís Arna Sigurðardóttir
Krýsuvíkurnefnd Guðmundur Smári Guðmundsson
Lávarðadeild Vilhjálmur Ólafsson
9. Viðurkenningar
Eftirfarandi viðurkenningar veittar:
Íþróttakarl Sörla Eyjólfur Þorsteinsson
Íþróttakona Sörla Hanna Rún Ingibergsdóttir
Efnilegasta ungmennið Glódís Helgadóttir
Ræktunarmenn Sörla Hörður Jónsson og Sigríður Jónsdóttir fyrir Galdur frá Reykjavík
10. Kosning formanns
Páll Ólafsson var einn í kjöri og var einróma kjörinn formaður.
11. Kosning stjórnar
Kjörnir eru þrír stjórnarmenn til tveggja ára á hverjum aðalfundi. Nú er lokið kjörtímabili Ásgeirs Margeirssonar, Eggerts Hjartarsonar og Þórunnar Ansnes. Telma Víglundsdóttir lætur auk þess nú af stjórnarstörfum á miðju kjörtímabili. Því eru nú kosnir fjórir stjórnarmenn.
Í framboði til stjórnarsetu eru Arnór Hlynsson, Ásgeir Margeirsson, Eggert Hjartarson og Þórunn Ansnes. Voru þau öll kjörin, með öllum greiddum atkvæðum. Aðrir í stjórn eru Sigurður Hlynur Árnason og Sigurður Emil Ævarsson.
12. Kjör nefnda
Ferðanefnd Kristján Jónsson formaður
Ísleifur Pálsson
Páll Gauti Pálsson
Ása Hólmarsdóttir
Laganefnd Telma Víglundsdóttir formaður
Atli Már Ingólfsson
Stefanía Sigurðardóttir
Fræðslunefnd Snorri Rafn Snorrason formaður
Vilhjálmur Karl Haraldsson
Reiðveganefnd Eggert Hjartarson formaður
Jón Ásmundsson
Jóhanner Ármansson
Hallgerður Hauksdóttir
Jón Björn Hjálmarsson
Kynbótanefnd Vilhjálmur Karl Haraldsson formaður
Adolf Snæbjörnsson
Freyja Aðalsteinsdóttir
Snorri Rafn Snorrason
Oddný Mekkin Jónsdóttir
Skemmtinefnd Bjarney Grendal Jóhannesdóttir formaður
Kristín Máría Jónsdóttir
Ása Magnúsdóttir
Margrét Freyja Sigurðardóttir
Brynja Björk Jónsdóttir
Rita Björk Þorsteinsdóttir
Hafdís Arna Sigurðardóttir
Vilhjálmur Karl Haraldsson
Mótanefnd Skipan mótanefndar vísað til stjórnar
Æskulýðsnefnd Dagbjört Hulda Guðbjörnsdóttir formaður
Bjarnleifur Smári Bjarnleifsson
Björn Páll Angantýrsson
Marie Greve
Krýsuvíkurnefnd Guðmundur Smári Guðmundsson formaður
Sigríður Kristín Hafþórsdóttir
Gunnar Ólafur Gunnarssson
Pétur Ingi Pétursson
Eyjólfur Þorsteinsson
Lávarðadeild Ekki kosið, sjálfskipuð núlifandi fyrrverandi formönnum Sörla
13. Kjör skoðunarmanna reikninga
Stefanía Sigurðardóttir og Ingvar Teitsson voru einróma endurkjörnir skoðunarmenn reikninga.
14. Árgjald
Stjórn leggur fram tillögu um að árgjald verði hækkað úr kr. 7.000 í kr. 10.000. Nokkur umræða var um málið og m.a. samanburður við önnur hestamannafélög, sem mörg hver hafa hærri árgjöld. Tillaga kom úr sal um að árgjald yrði kr. 12.000. Tillagan var felld. Tillaga stjórnar um kr. 10.000 árgjald var samþykkt samhljóða.
15. Lagbreytingar
Stjórn hafði lagt fram tillögu um breytt fyrirkomulag á uppgjörsári og aðalfundarfyrirkomulagi. Umræður voru um málið. Stjórn dró tillöguna til baka, til að unnt yrði að ígrunda málið betur og leggja til kynningar á framhaldsaðalfundi í vor. Ábending var um að kynna á aðalfundi, því mæting á framhaldsaðalfund að vori er jafnan mjög dræm, og er það einmitt ein meginástæðan fyrir hugmynd að breytingum.
16. Önnur mál
Rætt var um setu framkvæmdastjóra í stjórn. Fyrir liggur að ekki eru ágallar á því. Hins vegar er talið óeðlilegt að framkvæmdastjóri gegni embætti gjaldkera og mun það ekki vera þannig áfram.
Fundurinn þakkar Telmu Víglundsdóttur fyrr vel unnin stjórnarstörf.
Fundurinn þakkar ennfremur stjórn fyrir vel unnin störf og óskar nýrri stjórn velfarnaðar í störfum sínum fyrir félagið.
17. Fundarslit
Formaður þakkar fundarstjóra fyrir fundarstjórn og Telmu fyrir ánægjulegt og gott samstarf í stjórn. Hann hvetur félagsmenn til þátttöku í starfi félagsins, þakkar gott samstarf við félagsmenn og lýsir tilhlökkun til áframhaldandi öflugs félagsstarfs Sörla.
Formaður slítur fundi
Darri Gunnarsson, fundarstjóri
Ásgeir Margeirsson, fundarritari